Lífið

Frægir fjölguðu sér árið 2019

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fullt af börnum frægra komu í heiminn á árinu. Sennilega heil kynslóð af knattspyrnumönnum.
Fullt af börnum frægra komu í heiminn á árinu. Sennilega heil kynslóð af knattspyrnumönnum.

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn í fyrsta sinn.

Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn og má segja að 2019 hafi verið mikið barnalánsár.

Hér að neðan má sjá hvaða börn fæddust á árinu og Vísir greindi frá.

Í byrjun ársins eignuðust Alfreð Finnbogason og Fríða Rún Einarsdóttir sitt annað barn eða nánar tiltekið 3. janúar en knattspyrnufélagið FC Augsburg greindi frá því Twitter-reikningi félagsins á sínum tíma. 

Fyrir átti parið stúlku sem kom í heiminn í mars 2017. Hér að neðan má sjá færslu FC Augsburg.

Um mánuði síðar var komið að öðru landsliðsmanni en Jón Daði Böðvarsson og unnusta hans María Ósk Skúladóttir eignuðust sitt fyrsta þann 1. febrúar.

Stúlkan kom í heiminn tveimur dögum eftir settan dag.

Það var mikið barnalán hjá landsliðsmönnunum okkar en Arnór Ingvi Traustason og Andrea Röfn eignuðust sitt fyrsta barn 20. febrúar.

Eins og hjá Alfreð var það knattspyrnufélag Arnórs sem greindi frá tímamótunum. Arnór og Andrea eignuðust stúlku.

Tvíburar Ragnhildar Steinunnar og Hauks Inga Guðnasonar komu í heiminn 25. mars eftir draumafæðingu. Drengirnir eru eineggja.

„Rúmar 10 merkur hvor og báðir 46,5 cm. Við fjölskyldan erum endalaust þakklát fyrir þessa hraustu og fallegu viðbót við fjölskylduna. Lífið er fallegt. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra frábæru ljósmæðra sem hafa hugsað um okkur síðustu daga,“ sagði Ragnhildur og birtir myndir af nýju fjölskyldumeðlimunum á sínum tíma á Facebook.

Fyrir áttu þau tvö börn og er fjölskyldan orðin sex manna. 

Aðeins fjórum dögum síðar kom annað RÚV barn í heimin þegar fjölmiðlaparið Sóli Hólm og Viktoría Hermannsdóttir eignaðist stúlku aðfaranótt 29. mars. 

„Stúlkan var tæplega 16 merkur og 51 sentimetri. Stúlkan lét bíða lengi eftir sér en var svo fljót í heiminn þegar að því kom og tók fæðingin aðeins klukkutíma eftir að parið mætti upp á fæðingardeild,“ sagði Sóli á Facebook.

Fyrir áttu þau þrjú börn, Sóli tvo drengi og Viktoría eina stúlku.

Róbert Wessman og Ksenia Shakhmanovu eignuðust lítinn dreng þann 27. mars á árinu en Róbert greindi frá því í færslu á Instagram.

Róbert og Ksenia trúlofaðu sig inni í Þríhnúkagíg haustið 2018 og nú er fjölskyldan orðin þriggja manna.

Robert Ace Westmann var 3,5 kíló og 53 centímetrar þegar hann fæddist.  

Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir, kona hans, eignuðust sitt fyrsta barn í apríl.

Stúlkubarnið fékk nafnið Áróra Björg Daðadóttir, en það kom fram í færslu Daða Freys á Instagram.

Parið vakti athygli árið 2017 þegar þau tóku þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins og lentu þar í 2. sæti.

 
 
 
View this post on Instagram

Áróra Björg Daðadóttir

A post shared by Daði Freyr (@dadimakesmusic) on Apr 19, 2019 at 1:23am PDT

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir eignuðust stúlku um miðjan apríl en Jón greindi frá því á Instagram.

Stúlkan fékk nafnið Sigríður Sól Jónsdóttir en Jón talaði um það á Instagram að hún hafi komið í heiminn með bráðakeisara. Fyrir áttu þau tvö börn, einn dreng og stúlku.

17. júní árið 2019 var sannarlega eftirminnilegur hjá rapparanum Emmsjé Gauta og Jovönu Schally unnustu hans. Jovana fæddi son þeirra á ellefta tímanum að kvöldi sjálfs þjóðhátíðardagsins.

Parið hefur verið saman í á þriðja ár. Fyrir átti Gauti dóttur og Jovana sömuleiðis.

 
 
 
View this post on Instagram

Sonur okkar fæddist 17.júní kl.22.19 Allt er eins og það á að vera. Hann er fullkominn.

A post shared by Emmsjé Gauti (@emmsjegauti) on Jun 19, 2019 at 6:08am PDT

Þann 19.júní eignuðust  Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og eiginmaður hennar, Davíð Sigurgeirsson, sitt annað barn þegar lítill strákur kom í heiminn. 

Kærustuparið Klemens Hannigan, annar söngvari hljómsveitarinnar Hatara, og Ronja Mogensen listakona eignaðist sitt annað barn 24. júní.

Parið greindi frá fæðingu dóttur sinnar á Instagram en fyrir eiga þau saman aðra dóttur, Valkyrju, sem verður tveggja ára á þessu ári.

 
 
 
View this post on Instagram

Ég fæddi aðra dóttur, í baðkarið mitt, ein með sjálfri mér (og Klemens)

A post shared by Ronja Mogensen (@ronjamog) on Jun 24, 2019 at 7:31am PDT

Landsliðsmennirnir voru ekki hættir en Sverrir Ingi Ingason og kærasta hans, Hrefna Dís Halldórsdóttir, eignuðust dóttur þann 1. júlí.

Parið er búsett í Grikklandi þar sem Sverrir Ingi spilar fótbolta með gríska liðinu PAOK í borginni Thessaloniki. Hrefna Dís er samkvæmisdansari og vakti mikla athygli þegar hún tók þátt í þáttunum Allir geta dansað sem sýndir voru á Stöð 2 á síðasta ári.

Parið hefur verið saman í um það bil sex ár og er stúlkan þeirra fyrsta barn.

Í ágúst eignuðust hjónin Ingileif Friðriksdóttir, sjónvarps- og fjölmiðlakona, og María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns Viðreisnar, dreng.

María Rut greinir frá þessu á Instagram-reikningi og birtir með myndband af fæðingarsögu þeirra hjóna.

 
 
 
View this post on Instagram

Kl 02:42 í nótt breyttist lífið okkar til frambúðar þegar að litla ljónið okkar kom loksins í faðminn okkar. Hann er stálhraustur, 49 cm á lengd og 3226 grömm. Ég verð að segja að ég hef aldrei á ævinni séð jafn mikla áræðni og vinnusemi og ég varð vitni að í nótt. Ingileif tæklaði þetta verkefni af fullum krafti, missti aldrei móðinn og var sannkölluð valkyrja. Konur maður - what a concept! Ég sit hérna á spítalanum og er bókstaflega að rifna úr stolti. Yfir eiginkonunni minni sem ég elska af öllu hjarta og yfir þessu litla lífi sem er bara rétt að kvikna. Hann er guðdómlegur. Lífið er sannarlega rétt að byrja Við höfum verið galopnar með þetta ótrúlega ferli frá upphafi. Þannig að hérna er fæðingasagan okkar. Hún var dásamleg

A post shared by María Rut Kristinsdóttir (@mariarut) on Aug 15, 2019 at 11:51am PDT

Körfuboltamaðurinn Jón Arnór Stefánsson og Lilja Björk Guðmundsdóttir eignuðust dóttur í september eins og Jón greindi sjálfur frá á Instagram.

Jón og Lilja eiga því í dag tvær dætur og einn son.

 
 
 
View this post on Instagram

Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn - Our newborn daughter

A post shared by Jón Arnór Stefánsson (@jonstef) on Sep 6, 2019 at 4:58am PDT

Gunnar Nelson og Fransiska Björk Hinriksdóttir eignuðust stúlku saman í október.

Stúlkan var fyrsta barn Fransisku en fyrir á Gunnar á son úr fyrra sambandi. Stígur Týr fæddist árið 2014. Bardagakappinn greindi frá fæðingunni á Twitter.

Tónlistarmaðurinn vinsæli Friðrik Dór Jónsson og eiginkona hans Lísa Hafliðadóttir eignuðust dóttur 13. nóvember síðastliðinn. 

Stúlkan fékk nafnið Úlfhildur en fyrir áttu þau aðra stelpu, hana Ásthildi sem fæddist árið 2013.

Frumburður Auðuns Blöndal og Rakelar Þormarsdóttur kom í heiminn á svipuðum tíma. 

„Veit ekki hvort ég sé elsti pabbi landsins, en get staðfest að ég er 1 sá hamingjusamasti í dag!“ skrifaði Auðunn við mynd þar sem komu barnsins var tilkynnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.