Lífið

Gunnar og Fransiska Björk eignuðust stúlku

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Fransiska og Gunnar.
Fransiska og Gunnar. Instagram/gunninelson
Gunnar Nelson og Fransiska Björk Hinriksdóttir hafa eignast stúlku, Þetta er fyrsta barn Fransisku en fyrir á Gunnar á son úr fyrra sambandi. Stígur Týr fæddist árið 2014. Bardagakappinn skrifaði á Twitter í kvöld að hann sé stoltur af því hvernig Fransiska tókst á við fæðingarferlið og tekur fram að fæðingin hafi tekið nokkrar klukkustundir.

„Allir eru heilbrigðir og hamingjusamir.“

Föðurhlutverkið gerði hann að betri manni

Í viðtali í Einkalífinu á Vísi á síðasta ári sagði Gunnar að föðurhlutverkið hafi breytt sér og gert sig að betri manni.

„Þetta breytir manni helling. Maður þarf að aðlagast honum í dagsdaglegu lífi og þetta hefur hrikalega góð áhrif á mann. Maður þarf að breyta aðeins hugsunarhætti sínum og þú í raun og veru opnar nýja vídd í lífi þínu. Þetta er hrikalega gefandi.“

Hann sagði þar að það sé ekki til eins góð tilfinning og væntumþykja til barnanna þinna. 

„Strákurinn minn er hrikalega orkumikill og eins og mamma segir þá á ég hann fullkomlega skilið, alveg skuldlaust. Hún segir að hann sé alveg eins og ég þegar ég var lítill, hann stoppar ekki og er algjör skæruliði.“

Í viðtalinu ræddi Gunnar einnig um samband sitt og Fransisku Bjarkar og sagði að hún væri án efa rétta stúlkan fyrir sig.

„Hún hefur góð áhrif á mig og mér líður vel í kringum hana. Ég er afslappaður í kringum hana og það er svo mikilvægt að finna þetta þegar maður kemur heim eftir erfiðan dag að manni hlakki til að koma heim á heimilið þitt þar sem þér líður vel. Það getur eflaust verið erfitt í samböndum og maður vill kannski oft vera einn, en þegar sambönd ganga upp þá er það allt annað dæmi.“

Þáttinn má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.

Föðurhlutverkið hefur breytt mér

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.