Sportpakkinn: Tiger Woods ekki kátur eftir fyrsta dag Forsetabikarsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2019 16:00 Ernie Els, fyrirliði heimsúrvalsins, fagnar með C.T. Pan í nótt. Getty/Rob Carr
Heimsúrvalið er óvænt komið með góða forystu eftir fyrsta daginn í Forsetabikarnum í golfi en Bandaríkjamenn töpuðu fjórum af fimm fjórleikjum sínum í nótt. Arnar Björnsson skoðaði þessa óvæntu byrjun í Melbourne. Heimsúrvalið byrjaði forsetabikarinn með látum á Royal Melbourne golfvellinum í gærkvöldi. Tiger Woods, fyrirliði úrvalslið Bandaríkjanna, og Justin Thomas unnu Marc Leishman og Joaquin Niemann í 1. leiknum í fjórbolta. Þetta var jafnframt 1. sigur Tigers í fjórbolta í forsetabikarnum. Hann hefur unnið 25 leiki í þessari keppni, aðeins Phil Mickelson hefur unnið fleiri, 26. Heimsúrvalið, en evrópskir kylfingar eru ekki gjaldgengir í það, unnu næstu fjóra leiki. Adam Hadwin og Sungje Im sigruðu Patrick Cantley og Xander Schauffele 2 og 1 Byeong Hun Anog Adam Scott sigruðu Tony Finau og Bryson Dechambeau 2 og 1 Hideki Matsuyama og C.T. Pan sigruðu Patrick Reed og Webb Simpson á 18. holunni Abraham Ancer og Louis Oosthuizen sigruðu Gary Woodland og Dustin Johnson 4 og 3 Staðan er 4-1 fyrir heimsúrvalið. Í kvöld verður keppt í fjórmenningi en þá mætast: Adam Scott og Louis Oosthuizen gegn Matt Kuchar og Dustin Johnson Joaquin Niemann og Adam Hadwin gegn Patrick Cantlay og Xander Schauffele Hideki Matsuyama og Byeong Hun An gegn Tiger Woods og Justin Thomas Cameron Smith og Sungjae Im gegn Ricky Fowler og Gary Woodland „Þetta er aðeins öðru vísi en í síðustu forsetabikurum, frábær byrjun gegn ótrúlegu liði. Völlurinn var erfiður en golfið sem kylfingarnir buðu uppá var frábært. Margir fuglar og kylfingarnir að fá fín færi. Ég er stoltur af mínum mönnum, góð pútt á 17. brautinni og að ná að vinna þessa jöfnu leiki gegn öflugum mótherjum,“ sagði fyrirliðinn Ernie Els. Áður en keppnin hófst lýstu kylfingarnir í alþjóðaliðinu góðri stemningu í hópnum. Ljóst er að Ernie Els hefur kveikt neista hjá kylfingunum. Els var ekki í vafa þegar hann var spurður hvers vegna hans menn hefðu unnið fjórboltann? „Undirbúningurinn, þetta er alltaf sama gamla klisjan. Þú verður að búa þig undir keppnina og vera með einhverja áætlun. En það er nóg eftir en byrjunin er frábær. Við höfum ekki byrjað svona vel í mörg ár en við vitum að þetta er bara rétt að byrja. Við fögnum þessum áfanga og við þurfum að halda áfram,“ sagði Els. Tiger Woods fyrirliði bandaríska úrvalsliðsins var ekki jafn kátur: „Við þurfum að hafa fyrir sigrinum, þetta er ekki búið en þetta verður löng vika,“ sagði Tiger Woods. Það má frétt Arnars Björnssonar um Forsetabikarinn hér fyrir neðan. Klippa: Sportpakkinn: Tiger Woods ekki kátur eftir fyrsta dag Forsetabikarsins
Golf Sportpakkinn Mest lesið Reiddist Guðjóni og hætti í landsliðinu: „Þér er ekki fyrirgefið fyrir svona“ Fótbolti Sögðu danskri landsliðskonu að fara heim að vaska upp Fótbolti Dæmdur 10-0 sigur og titillinn í höfn eftir mikið hneyksli Handbolti Sonur Bruno Fernandes mætti á æfingu hjá FH Enski boltinn Írskur smáklúbbur græðir meira en hálfan milljarð þökk sé Liverpool Enski boltinn Sjáðu Ronaldo skjóta Portúgal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Ástandið á Urriðavelli ekki gott og Íslandsmótið fært á Hlíðavöll Golf Gunnlaugur paraður með sænskri stelpu í Arnold Palmer bikarnum Golf „Reynt að halda væntingum niðri og ég spyr mig af hverju?“ Fótbolti Leikur Íslands og Brasilíu ekki í beinni á Stöð 2 Sport Fótbolti Fleiri fréttir Gunnlaugur paraður með sænskri stelpu í Arnold Palmer bikarnum Ástandið á Urriðavelli ekki gott og Íslandsmótið fært á Hlíðavöll Var í góðum séns en missti af sæti á Opna bandaríska Heiðrún og Jóhannes unnu Hvaleyrarbikarinn í fyrsta sinn „Lengi dreymt um að keppa við þá“ Sjóðheitur Scheffler tryggði titil sem aðeins Tiger hafði tekist að verja Besti árangur Andreu á tímabilinu: Var með forystuna en endaði í fjórða sæti Tíu ára fór holu í höggi í Eyjum Frábær byrjun dugði ekki til og Gunnlaugur Árni úr leik Handtekinn í fyrra en vann nú með tárin í augunum Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Kylfingum skipað að flýja þrumuveðrið Stálheppinn þegar hann sló í hrífu og hélt toppsætinu Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Mikilmennin misstíga sig á PGA-meistaramótinu Fetar Spieth í fótspor McIlroy? Rosalegur ráshópur McIlroy Tveir Íslendingar gætu komist á US Open eftir dramatík hjá Dagbjarti Syni Tigers mistókst að tryggja sér sæti á Opna bandaríska Vinirnir vara Tiger við en honum er skítsama Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Sjá meira