Það fylgir því að vera opinber persónu eins og Lína að stór hluti af þjóðinni fylgist vel með einkalífi hennar. Hún hefur verið í sambandi með þjóðþekktum mönnum undanfarin ár og tekur það stundum á.
„Ég man síðast eða þarsíðast þegar ég kom úr sambandi þá sagði ég við sjálfan mig, guð ég ætla ekki í samband á næstunni og næst þegar ég verð með einhverjum verður það ekki með opinberum einstaklingi,“ segir Lína létt og bætir því við að auðvitað skipti það nú engu máli.
Lína hætti í sambandi með manni fyrir ekki svo löngu og segir hún að ástarsorg almennt sé mjög erfið viðureignar.
„Maður á bara að hugsa, mun þetta hafa áhrif á þig eftir tólf mánuði, og ef svarið er nei þá ætti manni strax að líða aðeins betur. Maður þarf samt alltaf að gefa sér tíma til að syrgja og leyfa sér að líða illa. Ef maður þarf að gráta, þá bara koma því bara öllu út. Ég er mjög góð að gera það. Ég er með svona leynihring sem ég keyri, ég elska nefnilega að gráta í bílnum. Þegar mér líður illa keyri ég alltaf þennan hring og er bara hágrátandi, öskra jafnvel en það skiptir rosalega miklu máli að losa þetta út,“ segir Lína sem er opin manneskja og talar mikið um tilfinningar sínar.
„En ástarsorg er viðbjóður, hún er það. Þú sérð einhvern veginn ekki fram á við strax. Þá hugsar maður bara um þessa tólf mánuði og svo verður þetta að minningu sem fjarar út. Eins pirrandi og það hljómar þá læknar tíminn öll sár.“
Í þættinum ræðir Lína einnig um baráttu sína við búlimíu og kaupfíkn, um líkamsímynd kvenna á samfélagsmiðlum, um slúðrir sem hún hefur mátt eiga við í gegnum tíðina, um nýjan sjónvarpsþátt sem hún fer af stað með á næstunni, um tónlistarferilinn og fatalínu sína.