Stærðarinnar hval rak á land á Gálmaströnd Eiður Þór Árnason skrifar 27. nóvember 2019 22:15 Talið er að það muni koma betur í ljós á morgun hver næstu skref verði. Lögreglan á Vestfjörðum
Stærðarinnar hval rak á land á Gálmaströnd við Stekkjarnes og barst tilkynning þess efnis lögreglunni á Vestfjörðum í dag. Hvalurinn var á lífi þegar hann fannst en er talinn hafa drepist rétt fyrir myrkur. Um var að ræða stóran Hnúfubak. Bjarnþóra María Pálsdóttir hjá lögreglunni á Hólmavík var send á vettvang fyrr í dag og segir málið vera komið í viðeigandi ferli. Hún segir í samtali við Vísi að fyrstu viðbrögð í svona málum séu alltaf að reyna að bjarga dýrinu en það hafi ekki verið raunhæft í þessu tilviki. Ekki var hægt að fara í frekari aðgerðir í dag vegna myrkurs og kemur því betur í ljós á morgun hvaða skref verða tekin til að fjarlægja hræið. Í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum kemur fram að lögreglunni hafi verið tilkynnt um hvalrekann á fjórða tímanum í dag og var hann talinn dauður um tveimur tímum síðar. Málið er sagt vera í vinnslu og að framhald aðgerða verði skoðað á morgun. Umhverfisstofnun hafi jafnframt verið upplýst um málið.Hér fyrir neðan má sjá myndband af dýrinu sem Bjarnþóra tók í dag. Hvalur í fjörunniHvalur í fjörunniPosted by Skotveiðifélag Íslands Skotvís on Wednesday, November 27, 2019
Dýr Strandabyggð Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin Sjá meira