Wales á EM | Markaveisla hjá Belgíu, Hollandi og Þýskalandi Anton Ingi Leifsson skrifar 19. nóvember 2019 21:30 Leikmenn Wales fagna. vísir/getty Wales tryggði sér sæti á HM með 2-0 sigri á Ungverjalandi í hreinum úrslitaleik um sæti á EM 2020 á heimavelli í kvöld. Aaron Ramsey var funheitur í kvöld og skoraði bæði mörk Wales. Fyrra markið skoraði hann á 15. mínútu eftir frábæran undirbúning Gareth Bale og það síðara á 47. mínútu. Wales endar því í öðru sæti riðilsins með fjórtán stig, þremur stigum á eftir toppliði Króatíu, en Slóvakía og Ungverjaland sitja eftir með sárt ennið.Aaron Ramsey has scored twice in a game for Wales for the first time. Cometh the hour, cometh the Ramsey. pic.twitter.com/ty05EONcFk — Squawka Football (@Squawka) November 19, 2019 Georginio Wijnaldum var í banastuði er Holland vann 5-0 sigur á Eistlandi á heimavelli. Liverpool-maðurinn skoraði þrjú mörk en Nathan Ake og Myron Boadu bættu við sitthvoru markinu. Í sama riðli skoruðu Þjóðverjar sex mörk gegn Norður-Írlandi í 6-1 sigri. Norður-Írland komst yfir en þeir þýsku gengu þá á lagið. Serge Gnabry gerði þrjú mörk, Leon Goretzka tvö og Julian Brandt eitt. Þýskaland endar með 21 stig, Holland 19 en Norður-Írland 13.4 - Georginio Wijnaldum has scored what his his first competitive hat-trick for club or country in four years and 32 days, when he scored four in a Premier League game against Norwich City while playing for Newcastle United in October 2015. Collection. pic.twitter.com/x18Vy7rF4x — OptaJoe (@OptaJoe) November 19, 2019 Það var nóg af mörkum í leikjum kvöldsins. Belgía skoraði sex mörk gegn Kýpur í 6-1 sigri er liðin mættust í I-riðlinum og Rússía vann 5-0 sigur á San Marínó í sama riðli. Kevin De Bruyne skoraði tvö mörk fyrir Belgíu sem og Christian Benteke. Yannick Ferreira-Carrasco gerði eitt mark og eitt mark var sjálfsmark en Kýpur komst yfir í leiknum. Belgarnir vinna riðilinn með fullt hús stiga, Rússarnir enda í öðru sætinu með 24 og Skotar í þriðja með fimmtán stig.- Teams to win 10 matches in a single EURO qualification campaign Belgium (EURO 2020) Italy (EURO 2020) England (EURO 2016) Germany (EURO 2012) Czech Republic (EURO 2000)#EURO2020#BELCYP — Gracenote Live (@GracenoteLive) November 19, 2019Öll úrslit kvöldsins:C-riðill: Þýskaland - Norður Írland 6-1 Holland - Eistland 5-0E-riðill: Slóvakía - Aserbaídsjan 2-0 Wales - Ungverjaland 2-0G-riðill: Norður Makedónía - Ísrael 1-0 Lettland - Austurríki 1-0 Pólland - Slóvenía 3-2I-riðill: Belgía - Kýpur 6-1 San Marinó - Rússland 0-5 Skotland - Kasakstan 3-1 EM 2020 í fótbolta Wales
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti