Nýr Golf kynntur Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 25. október 2019 16:00 Volkswagen Golf MK8 Volkswagen
Áttunda kynslóðin af Volkswagen Golf mun koma á göturnar á næsta ári. Hann verður einungis í boði í fimm dyra útgáfu og verður þónokkuð uppfærður frá því sem áður hefur sést. Golf-inn var frumsýndur á dögunum í höfuðstöðvum Volkswagen í Wolfsburg, Þýskalandi.Innra rýmið í Golf MK8VolkswagenVélarBíllinn verður fáanlegur með þremur nýjum mildum tvinnvélum. Hann verður fáanlegur með 1,0 líters bensínvél, 1,5 lítra bensínvél og 2,0 lítra dísilvél. Bensínvélarnar verða svo í boði sem eTSI sem mildar tvinn-vélar. Það virkar þá þannig að rafall og startari eru tengdir við 48V geymi sem nýtist til að brúa bilið ef hægt er til að minnka eldsneytisnotkun. Að sögn Volkswagen getur þetta leitt til um 10% eldsneytissparnaðar. Kraftmesta útgáfan verður GTE útgáfan sem er 214 hestafla tengil-tvinnbíll. Hann mun hafa 50% afkastameiri rafhlöður en sá gamli.Car2X kerfið er snjallkerfi sem á í samskiptum við aðra til þess að auka öryggi og auðvelda akstur.VolkswagenTæknilegar nýjungarFyrir utan uppfærslur í afþreyingarkerfi og mælaborði eru ýmsar uppfærslur sem rista dýpra. Nýja útgáfan af Golf verður til að mynda uppfæranleg yfir internetið, líkt og Tesla hefur gert.Car2XGolf mun nýta Car2X tækni, sem þýðir að bíllinn getur með hjálp þráðlauss nets eða farsímanets átt í samskiptum við aðra bíla með sama búnað. Eins getur bíllinn átt í samskiptum við vegbúnað, t.d. umferðaljós. Slíkt mun nýtast til að veita rauntíma upplýsingar um umferðarálag á götum, stilla af umferðastýrð ljós og fleira.
Bílar Tækni Tengdar fréttir Tíu söluhæstu bílar heims 2018 Toyota Corolla hefur á síðustu árum verið söluhæsta einstaka bílgerð í heimi og árið í fyrra var engin undantekning. 7. febrúar 2019 16:00 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður
Tíu söluhæstu bílar heims 2018 Toyota Corolla hefur á síðustu árum verið söluhæsta einstaka bílgerð í heimi og árið í fyrra var engin undantekning. 7. febrúar 2019 16:00