Neville: Held að Liverpool geti ekki tapað þessu úr því sem komið er Anton Ingi Leifsson skrifar 7. október 2019 14:30 Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool. vísir/getty
Þegar átta umferðir eru búnar af enska boltanum er silfurliðið frá því á síðustu leiktíð, Liverpool, með átta stiga forskot á Englandsmeistarana í Manchester City. Liverpool vann 2-1 sigur á Leicester með marki á 95. mínútu úr vítaspyrnu á meðan Manchester City tapaði 2-0 fyrir Wolves á heimavelli í gær. Umferðin var gerð upp á Sky Sports í gær en Gary Neville, Jamie Redknapp og Greame Souness sögðu allir sína skoðun á forystu Liverpool. „Ég held að þeir geti ekki tapað þessu úr því sem komið er,“ sagði Gary Neville er hann gerði upp helgina í enska boltanum. „Þeir eru klárlega líklegastir en ef Van Dijk eða Salah meiðast þá gæti þetta breytast. Það eru þrjátíu leikir eftir af mótinu.“"I think if they keep their heads, keep Van Dijk, keep Mo Salah fit - I do believe it's Liverpool's year." — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) October 7, 2019 Annar sparkspekingur Sky Sports og fyrrum stjóri Liverpool, Greame Souness, er þó ekki jafn viss og Neville. „Reynsla mín af fótboltanum er sú að taka ekki neinu sem sjálfsögðum hlut,“ bætti Souness við. Jamie Redknapp tók í svipaðan streng og Neville. „Þetta var frábær helgi fyrir Liverpool og gerist varla betri fyrir stuðningsmenn Liverpool. Þetta er þeirra að tapa núna. Ef þeir halda haus, halda Van Dijk og Salah án meiðsla þá held ég að Liverpool vinni.“
Enski boltinn Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira