Sakaður um að drepa föður sinn á villisvínaveiðum Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2019 10:30 Feðgarnir voru á villisvínaveiðum í þjóðgarði. Getty
Lögregla á Ítalíu hefur sakað karlmann um manndráp af gáleyfi eftir að hann skaut og drap föður sinn á villisvínaveiðum. Í frétt BBC segir að feðgarnir hafi verið á ferð í þéttu skóglendi nálægt bænum Postiglione í Salerno-héraði í suðurhluta landsins á sunnudag þegar atvikið átti sér stað. Sonurinn, sem er 34 ára, á að hafa skotið úr riffli sínum þegar hann sá skugga og greinar á hreyfingu. Hafnaði kúlan neðarlega í kvið föðurins. Sonurinn kallaði þá til björgunarlið og reyndi að bjarga lífi föður síns, hins 55 ára Martino Gaudioso, en allt kom fyrir ekki. Ítalskir fjölmiðlar segja feðgana hafa verið á veiðum í þjóðgarði þar sem veiðar eru bannaðar. Voru rifflar þeirra gerði upptækir. Þetta er ekki eina sambærilega dauðsfallið á Ítalíu á síðustu árum. Í október á síðasta ári hvatti umhverfisráðherra landsins, Sergio Costa, til þess að bannað yrði að stunda skotveiðar á sunnudögum. Gerði ráðherrann það í kjölfar þess að átján ára piltur var skotinn til bana á veiðum nærri frönsku landamærunum. Þá létust einnig 56 ára og 20 ára karlmenn í svipuðum slysum sama mánuðinn.
Ítalía Mest lesið Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Innlent Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Innlent Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Innlent Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran Erlent Veðurviðvaranir og vegalokanir Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Innlent Ungmenni nota tálbeituaðferðir til að ráðast á meinta níðinga Innlent Undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingar Innlent Starfsmanni ÍSÍ dauðbrá þegar hún mætti til vinnu Innlent Starfsmaður frá Filippseyjum syngur og syngur á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir loftárás Rússa Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós Innsetningarathöfnin verður innandyra í fyrsta sinn í fjörutíu ár Hæstiréttur veitir TikTok banninu blessun sína Ríkisstjórnin fundar um vopnahlé Deilur á þingi gætu komið niður á áherslum Trumps Styrkur gróðurhúsalofttegunda aldrei aukist eins hratt Andstaða gegn banni við hjónaböndum systkinabarna Mikið sjónarspil eftir að Starship sprakk „Kallaðu mig Meistara, þá fæ ég það“ Imran Khan í fjórtán ára fangelsi Ræddu í 45 mínútur um Grænland og dönsk fyrirtæki Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Segir samkomulagið standast og vopnahléið hefjist á sunnudag Fyrrverandi forsætisráðherra Finna fer fram á nálgunarbann Her Súdan í sókn gegn RSF og hermenn sakaðir um ódæði Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Rak formann mikilvægrar nefndar að beiðni Trumps Betri aðstæður næstu daga: Rúmlega tólf þúsund byggingar hafa brunnið Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Deila um ákvæði um fangaskipti Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Biden varar við fáveldi í Bandaríkjunum Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Sakar Rússa um skipulagningu hryðjuverka Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Mál horfinna systra skekur Skotland Sjá meira