Fann afdrifaríka reiknivillu á prófsýningu inntökuprófa í læknisfræði Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. september 2019 14:30 Nemendurnir fimm hefja nám við læknadeild Háskóla Íslands á mánudag, þremur vikum á eftir samnemendum sínum á fyrsta ári. Vísir/vilhelm
Reiknivilla, sem uppgötvaðist við prófsýningu á inntökuprófum í læknisfræði við Háskóla Íslands í vikunni, varð til þess að fimm einstaklingar bætast á mánudag við hóp nýnema við læknadeild skólans, þremur vikum eftir að önnin hófst. Nemendurnir fimm stóðu í þeirri trú að þeir hefðu ekki komist inn í læknisfræði þangað til að hringt var í þá og þeim boðin skólavist eftir að reiknivillan var staðfest. Forseti læknadeildar HÍ harmar atvikið. Læknadeild hefur verið með inntökupróf um margra ára skeið og margir eru ævinlega um hituna. Í ár var áætlað að taka 54 nemendur inn í deildina eftir prófið, sem þreytt var í júní síðastliðnum. Tveir reyndust jafnir með nákvæmlega sömu einkunn í 54. sæti og hófu því 55 fyrsta árs nemar nám við læknadeild Háskóla Íslands nú í ágúst. „Í prófsýningum sem fara alltaf fram í lok ágúst og byrjun september þá kemur fyrir að nemar reka augun í eitthvað sem þeir benda okkur á og það gerðist í prófsýningu nú í seinni hluta vikunnar að einn nemi tók eftir reiknivillu í sínu prófi og benti á það,“ segir Engilbert Sigurðsson, forseti læknadeildar Háskóla Íslands.Ráða alveg við 60 nemendur Í kjölfarið var rætt beint við stærðfræðinginn sem reiknar út úr prófinu fyrir læknadeild. Hann staðfesti að um reiknivillu væri að ræða sem snerti þó mikinn minnihluta nemendanna sem þreyttu prófið.Engilbert Sigurðsson, forseti læknadeildar Háskóla Íslands.„Villan leiddi engu að síður til þess að fyrir þá sem urðu fyrir henni gat hún breytt talsvert miklu um röð þeirra. Fyrir vikið færðust fimm úr því að vera í sætum sem voru í sumum tilvikum talsvert langt frá því að vera 55 efstu sætin, upp í sæti sem voru á bilinu 23 til 52. Þar með var hópurinn orðinn 60 manns, sem er nokkurn veginn sú tala sem við höfðum stefnt að að taka inn frá og með næsta ári. Þannig að það er eitthvað sem við ráðum alveg við,“ segir Engilbert.Reiknivillan fleytti engum inn Hann segir jafnframt mikilvægt að fram komi að engir af þeim 55 nemendum, sem voru í hópnum fyrir, hafi ratað þangað vegna reiknivillu. „Það er mikilvægt atriði. Þeir sem eru teknir inn eru einfaldlega þeir sextíu efstu sem þreyttu prófið. En við hörmum það mjög að þessi reiknivilla, sem við höfum aldrei orðið vör við áður, hafi gerst. En svona hlutir geta gerst í flóknum útreikningum með mjög stór skjöl.“ Engilbert segir deildina ákaflega þakkláta nemanum sem benti á villuna. Hann leggur áherslu á að brugðist hafi verið tafarlaust við ábendingunni og niðurstöðurnar endurreiknaðar strax um kvöldið. „Ég ræddi við hvern og einn nemanda strax næsta morgun og bauð þeim skólavist nú strax í haust. Þau eru öll búin að þiggja það og byrja á mánudaginn. Ég er líka búinn að tala við fyrsta árið og biðja þau um að taka vel á móti þeim og skýra fyrir þeim hvernig þetta er vaxið.“ Nemendurnir í erfiðri stöðu Engilbert segir að almennt hafi nemendurnir sem urðu fyrir reiknivillunni verið ánægðir með fréttirnar, þó að málið hafi vissulega komið flatt upp á þau og sett þau í erfiða stöðu. „Og hjá okkur eru þetta blendnar tilfinningar. Við erum ánægð með að þetta hafi komist upp en auðvitað líður okkur illa með að sumir hafi fengið þessi tíðindi eftir þessum leiðum svona rétt eftir að námið er hafið.“ Í framhaldinu verði ferlinu við útreikninga breytt og það eflt. Þannig muni tveir aðilar fara yfir niðurstöður útreikninganna. Engilbert segir að þessar breytingar muni þó, því miður, seinka niðurstöðum inntökuprófsins sem iðulega er beðið með mikilli eftirvæntingu. „En við verðum að gera það til að lágmarka algjörlega líkurnar á svona reiknivillum. Það þarf að vanda til verka. Þetta er geisilega vinsælt próf og vekur eðlilega upp margar tilfinningar hjá próftökum.“ Þrjár vikur eru síðan fyrsta árs læknanemarnir byrjuðu í skólanum. Hinir fimm munu því hefja nám á fjórðu viku fyrstu annarinnar. Engilbert segir að það ætti að ganga vel upp. „Það sem er búið er mikið til undirbúningur, ákveðinn inngangur. Við höfum áður tekið inn nema á þessum tíma þegar minniháttar breytingar hafa orðið út af spurningu sem við felldum út þannig að við höfum alveg reynslu af því áður. Þannig að það verður í lagi.“
Skóla - og menntamál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira