Hlín tryggði Val sigur á bikarmeisturunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. ágúst 2019 20:25 Hlín skoraði sitt þrettánda mark í Pepsi Max-deildinni í kvöld. vísir/bára
Valur er enn með tveggja stiga forystu á toppi Pepsi Max-deildar kvenna eftir 0-1 sigur á bikarmeisturum Selfoss á útivelli í kvöld. Valskonur hafa unnið alla sjö útileiki sína á tímabilinu. Hlín Eiríksdóttir skoraði eina mark leiksins um miðjan seinni hálfleik. Hún er markahæst í deildinni ásamt samherja sínum hjá Val, Elínu Mettu Jensen. Þær hafa báðar skorað 13 mörk. Þrátt fyrir að hafa spilað 120 mínútna bikarúrslitaleik á laugardaginn og vera án Hólmfríðar Magnúsdóttur var kraftur í Selfyssingum í leiknum í kvöld. Heimakonur sluppu reyndar vel undir lok fyrri hálfleiks. Fyrst varði Kelsey Wys tvisvar í sömu sókninni og svo átti Ásgerður Stefanía Baldursdóttir skot í stöng. Staðan var markalaus í hálfleik. Á 65. mínútu skoraði Hlín sigurmarkið með skoti á lofti eftir fyrirgjöf Hallberu Gísladóttur. Skömmu fyrir leikslok fékk Anna María Bergþórsdóttir dauðafæri fyrir Selfoss en skaut yfir. Það reyndist síðasta tækifæri bikarmeistaranna sem urðu að sætta sig við tap. Selfoss er í 4. sæti deildarinnar með 22 stig, tveimur stigum á eftir Þór/KA sem er í 3. sætinu. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Umfjöllun: KR 1-2 Breiðablik | Blikar komu til baka í seinni hálfleik Breiðablik heldur í við topplið Vals með sigri á Meistaravöllum í kvöld 21. ágúst 2019 20:45 Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Fleiri fréttir Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Sjá meira
Umfjöllun: KR 1-2 Breiðablik | Blikar komu til baka í seinni hálfleik Breiðablik heldur í við topplið Vals með sigri á Meistaravöllum í kvöld 21. ágúst 2019 20:45
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn