Skoðun

Falskt flagg

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Sögulega er Sjálfstæðisflokkurinn málsvari hægristefnu. En undanfarin ár hefur hann orðið upptekinn af því að vera breiðfylking. Flokkurinn hefur lent milli skips og bryggju. Frjálslyndari hægrimenn finna farveg í Viðreisn, hinir íhaldssamari geta stutt Framsókn og þeir sem ginnkeyptir eru fyrir popúlisma fallið fyrir Miðflokknum.

Flokknum gæti reynst happadrýgra að tala með skýrum hætti fyrir rótgrónum gildum.

Frjálslyndir hægrimenn eru landlausir líkt og í mörgum öðrum löndum. Hefðbundin mál flokksins um takmörkuð ríkisafskipti, frelsi í viðskiptum, víðsýni í samskiptum við útlönd og aga í ríkisfjármálum hafa fallið í skuggann. En eftirspurn eftir slíkum málflutningi er ekki horfin. Hinar öfgarnar eru varla kostur. Stór hægriflokkur mun aldrei geta keppt í pólitískum yfirboðum við hreina popúlista eins og Miðflokkinn.

Tilvistarvandi Sjálfstæðisflokksins er ekki sér­íslenskt fyrirbrigði. Um allan hinn vestræna heim á klassísk frjálslynd hægristefna undir högg að sækja. Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur gengið svo langt að lýsa yfir ótímabæru dauðsfalli líberalismans. Financial Times lagði nýlega út frá þessum ummælum Pútíns og taldi hann hafa rangt fyrir sér. Réttara væri að segja að lýðskrumarar sigli undir fölsku flaggi, þykist fylgja hægristefnu sem þeir segja almennt upp á sitt besta þegar jafnvægi ríkir milli frjálslyndis og íhaldssemi. Ný tegund leiðtoga sveipi sig ljóma íhaldssemi og viðskiptafrelsis. En ekki fari saman orð og gjörðir.

Trump sækir stuðning til trúarhópa en telst varla breyta eins og sannkristinn maður. Hann þykist talsmaður viðskiptafrelsis en reisir á sama tíma tollmúra á báða bóga. Boris Johnson virðist ætla út úr Evrópusambandinu hvað sem tautar og raular, með tilheyrandi skelli fyrir efnahagslífið. Samt þykist hann talsmaður hagsældar og frjálsra viðskipta. Hvorki Trump né Johnson láta staðreyndir flækjast fyrir sér í sínu tali.

Sama þróun er auðvitað í gangi hér á landi. Orkupakkamálið er strámaður úr smiðju Steve Bannon eða Dominic Cummings, þekktra áróðursmeistara.

Málið er prófraun á stjórnmálaflokka sem vilja láta taka sig alvarlega. Ýmislegt bendir nú til þess að Vinstri græn og Framsókn séu að gefa eftir í afstöðu sinni. Það hlýtur að vera kærkomið tækifæri fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins til að taka forystu á hægri vængnum, líkt og hann gerði á árum áður.

Þarna er tækifæri til að slá nýjan tón. Tala skýrt fyrir alþjóðasamstarfi og skynsamlegum samskiptum við okkar helstu viðskiptalönd. Hvers vegna ætti að tefla farsælum samskiptum við vinaþjóðir í tvísýnu þegar engir hagsmunir eru undir?

Hvorki né afstaða fer öllum stjórnmálaflokkum illa, hvort sem þeir eru á hægri væng eða vinstri. Best er að taka afstöðu með sjálfum sér og láta moldviðri popúlistanna sem vind um eyru þjóta.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×