Öryggisbrestur hjá Facebook náði til eins einstaklings á Íslandi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. ágúst 2019 11:01 Nýlega var upplýst um að samfélagsmiðillinn Facebook hefði notað verktaka til að yfirfara hljóðupptökur vísir/getty
Persónuvernd hefur fengið þær upplýsingar að nýlegur öryggisbrestur hjá Facebook, þar sem verktakar voru notaðir til að yfirfara hljóðupptökur sem teknar voru upp í gegnum skilaboðaforrit fyrirtækisins, Messenger, hafi náð til eins einstaklings á Íslandi.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Persónuvernd þar sem segir meðal annars að stofnunin hafi ákveðið að hefja frumkvæðisathugun vegna þessa öryggisbrests hjá Facebook. Nýlega var upplýst um að samfélagsmiðillinn Facebook hefði notað verktaka til að yfirfara hljóðupptökur sem teknar voru upp í gegnum skilaboðaforrit fyrirtækisins, Messenger, í tengslum við „Voice to text“-þjónustu forritsins. Í tilkynningu Persónverndar segir að samkvæmt upplýsingum frá Persónuverndarstofnun Írlands sé um að að ræða hljóðupptökur frá um það bil fimmtíu einstaklingum á evrópska efnahagssvæðinu, þar af einum frá Íslandi, sem voru afritaðar handvirkt af Facebook þegar einstaklingur í Bandaríkjunum notaði umrædda þjónustu forritsins og átti í samskiptum við einstakling á evrópska efnahagssvæðinu. Samkvæmt upplýsingum sem Persónuvernd hafa borist hefur verið slökkt á umræddum valmöguleika á meðan atvikið er til skoðunar að því er segir í tilkynningunni. Þar segir jafnframt að það sé ábyrgð persónuverndarstofnana hvers og eins ríkis innan EES, sem öryggisbresturinn nær til, ábyrgð á að fylgja málinu eftir. Því hafi Persónuvernd ákveðið að hefja frumkvæðisathugun vegna þessa öryggisbrests hjá Facebook.
Facebook Persónuvernd Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira