Tvö mörk Lewandowski dugðu Bayern ekki til sigurs Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. ágúst 2019 20:26 Lewandowski skoraði tvö mörk í upphafsleik þýsku úrvalsdeildarinnar. vísir/getty
Bayern München hóf titilvörn sína með því að gera jafntefli við Herthu Berlin, 2-2, í upphafsleik þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Bæjarar hafa orðið þýskir meistarar sjö ár í röð. Robert Lewandowski kom Bayern yfir með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Serge Gnabry á 24. mínútu. Á 36. mínútu jafnaði Vedad Ibisevic þegar skot Dodis Lukebakio fór í bakið á honum og í netið. Tveimur mínútum síðar slapp Marko Grujic, lánsmaður frá Liverpool, inn fyrir vörn Bayern, lék á Manuel Neuer og skoraði. Tvö mörk á þremur mínútum hjá gestunum frá Berlín. Á 60. mínútu reif Grujic Lewandowski niður í teignum og vítaspyrna var dæmd. Pólverjinn fór á punktinn og skoraði af öryggi. Lewandowski hefur orðið markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar tvö ár í röð og byrjar þetta tímabil af krafti. Næsti leikur Bayern er gegn Schalke á útivelli á laugardaginn í næstu viku.
Þýski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Sjá meira