HK í öðru sæti yfir besta árangurinn í síðustu fimm leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2019 15:00 HK-ingar fagna einum af sigrum sínum að undanförnu en þarna unnu þeir nágranna sína í Breiðablik og það í Smáranum. Vísir/Bára
HK-ingar unnu í gær 2-0 sigur á FH-ingum í Kórnum og fögnuðu þar með þriðja sigri sínum í röð í Pepsi Max deild karla í fótbolta.HK-liðið er nú komið með 17 stig í deildinni og er í áttunda sæti deildarinnar þegar þrettán umferðir eru af baki.HK-ingar fengu samt aðeins fimm stig út úr fyrstu átta leikjum sínum í sumar og sátu þá í fallsæti eftir 2-1 tap á móti Víkingum í sannkölluðum sex stiga leik 14. júní síðastliðinni. Brynjari Birni Gunnarssyni, þjálfara HK og aðstoðarmönnum hans tókst þá að snúa við blaðinu og sjálfstraust HK-liðsins hefur vaxið með hverjum leiknum að undanförnu.HK vann 2-0 útisigur á ÍA í slag nýliðanna í næsta leik og hefur nú unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum. Liðið hefur einnig unnið Breiðablik, KA og nú síðast FH. Aðeins leikurinn á móti Val tapaðist en þar voru HK-ingar yfir í 25 mínútur og fengu á sig sigurmark á fimmtu mínútu í uppbótatíma. Það er aðeins topplið KR sem hefur náð í fleiri stig í síðustu fimm leikjum sínum af liðum Pepsi Max deildarinnar og Vesturbæingar hafa aðeins einu stigi meira en HK á þessum tíma.HK er líka með plús fimm mörk í markatölu á þessum tíma og eru þar með bestu markatöluna ásamt KR-liðinu. Hér fyrir neðan má sjá bestan árangur liðanna í undanförnum fimm leikjum sínum.Besti árangur liða í Pepsi Max deild karla í síðustu fimm leikjum: 1. KR 13 stig (Markatala: +5) 2. HK 12 stig (+5) 3. Valur 10 stig (+3) 4. Stjarnan 8 stig (+4) 5. Fylkir 7 stig (-2) 6. FH 7 stig (-1) 7. Breiðablik 7 stig (+1) 8. Víkingur 6 stig (0) 9. ÍA 6 stig (0) 10. Grindavík 4 stig (-1) 11. KA 1 stig (-5) 12. ÍBV 0 stig (-9)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Körfubolti Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Körfubolti Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Enski boltinn Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti Tvær tillögur um að fjölga karlaleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Sjá meira