Skoraði á 78 mínútna fresti í Lengjubikarnum er enn markalaus í Pepsi Max Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2019 16:00 Gonzalo Zamorano í leik á móti Breiðabliki í Pepsi Max deild karla í sumar. Vísir/Daníel
Spánverjinn Gonzalo Zamorano var sendur inn á völlinn á Skaganum í gærkvöldi til að reyna tryggja Skagamönnum jafntefli á móti Íslandsmeisturum Vals en niðurstaðan var sú sama hjá honum og í allt sumar. Gonzalo Zamorano virðist hreinlega vera fyrirmunað að koma boltanum yfir markalínu mótherjanna í Pepsi Max deildinni. Það stefndi aftur á móti í allt annað á undirbúningstímabilinu þegar það voru fáir heitari framherjar hér á landi. Gonzalo Zamorano skoraði sex mörk í sjö leikjum í Lengjubikarnum og var þá með mark á aðeins 78 mínútna fresti. Hann skoraði meðal annars eftirminnilega þrennu á móti Stjörnumönnum og líka mark á móti Pepsi Max deildarliðum Grindavíkur og KA. Leikurinn í gær var fjórtándi leikur Gonzalo Zamorano í Pepsi Max deildinni í sumar og Spánverjinn hefur ekki enn komist á blað. Alls hefur Gonzalo Zamorano nú spilað 704 mínútur í Pepsi Max deildinni án þess að skora. Hann fékk reyndar bara 12 mínútur í leiknum á móti Val í gær og bara 21 mínútu í leiknum á móti KA í umferðinni á undan. Gonzalo Zamorano hefur samt byrjað inn á í helmingi leikja sinna eða í sjö leikjum af fjórtán. Í hinum hefur hann komið inná sem varamaður. Frá því að Gonzalo Zamorano skoraði síðast í Lengjubikarleik á móti KA 21. mars eru liðnir 130 dagar. Hann hefur síðan spilað alls 968 mínútur í öllum keppnum án þess að skora.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sjá meira