Sæðisstuldur Arnar Sverrisson skrifar 1. júlí 2019 14:11 Það vakti eftirtekt fyrir nokkrum árum, þegar upp komst um nauðgunargengi kvenna í Zimbawe (Ródesíu), sem fór um sveitir og ruplaði sæði karlmanna. Eftir því sem ég best veit, varð aldrei almælt til hvers sæðið var notað. En í samfélögum ýmsum er því trúað, að karlsæði búi yfir mögnuðum töframætti og auki m.a. frjósemi. Í anda slíkrar trúar hefur því með sumum kynþátta tíðkast, að karlmenn frói sér í holur í jörðinni eða í potta, sem síðan er sötrað af. Í upplýstri menningu Vesturlanda býr sæðið enn yfir þeim töframætti að kveikja nýtt líf. Þar af leiðandi er það orðið bitbein í hinu óhamingjulega stríði kynjanna. Öfgakvenfrelsara dreymir nefnilega um að stjórna viðkomu mannkynsins og auka verulega hlutfall kvenkynsins. Í heimildamynd frá Danmarks Radio (RÚV danskra) og í virtu, dönsku blaði, Information, er sagt frá reynslu Jóns Kjelland, ungs námsmanns, sem átti óvarið kynlíf með stúlku frá Austurríki. Ástmærin tók ekki „eftirsjárpilluna,“ sem elskhuginn útvegaði. Hún varð með barni. Hugur Jóns stóð þó hvorki til barneigna né frekari ástarkynna við konuna. Engu að síður fór hann á fund hennar, gekkst umsvifalaust við faðerninu og bauð fram danskt barnameðlag. Barnsmóðirin krafðist hins vegar aukins austurrísks barnameðlags, sem er hærra en hið danska. Í grein sinni segir Jón: „Það er trúa mín, að ég hefði breytt með öðrum hætti, hefði ég alist upp í samfélagi, þar sem raunverulegt jafnrétti ríkti millum kynjanna [og] konan væri álitin ábyrg fyrir vali sínu, en ekki skilgreind sem fórnarlamb í sjálfu sér. Hugsanlega var barnsmóðir mín einungis á höttum eftir sæðisgjafa, sem fús væri til að borga. Hún innti mig aldrei eftir því, hvort ég æskti þess að verða faðir.“ Jóni var neitað um erfðaefnisgreiningu. Dótturina hafði hann ekki fengið að sjá um tveggja ára skeið. Hatursfull viðbrögð létu ekki á sér standa. Einstakur hvítur riddari eða heiðurskona (karlmenn, sem styðja öfgakvenfrelsara), mundaði lensuna. En konurnar voru atkvæðamestar. „Hatrinu má skipta í þrennt: Niðurlægjandi athugasemdir um kynfæri karla; athugasemdir um vol og víl karla, sem kveinka sér undan ábyrgð, og að síðustu athugasemdir þess efnis, að karlar hefðu um aldur og ævi kúgað konur og því væri jafnrétti karla á borð við konur ... skref afturábak í menningarlegum skilningi.“ (Jon Kjelland) Móðurréttur og framfærsluskylda karla eru gamalgrónir þættir fjölskylduréttar, sem konur beita markvisst í „frelsisbaráttu“ sinni eins og sést í fyrrgreindu máli. Skírskotun til hefðarinnar beita konur markvisst, jafnvel gegn unglingspiltum, sem hlutaðeigandi hafa nauðgað - og orðið barnahafandi fyrir bragðið. Breski lögfræðingurinn, Kate Ryan, hefur nýverið rannsakað stöðu þessara mála í heimalandi sínu. Hún segir: “Það er alkunna, að fjölskylduréttur, sérstaklega, þegar um börn er að ræða, dregur taum kvenna. Ég hugsa, að þetta viti konur og beiti því. Þær ganga ekki að því gruflandi, að þar er viðkvæman blett að finna. Það eru klækjabrögð (manipulation).” Önnur mæt kona, Judith Levine, hefur bent á hið dulbúna hatur kvenna til karla eins og það birtist í algengum tvískinnungi, sem m.a. lýsir upp mál Jóns: „Karlhatrið leynist víða, en hvarvetna er það brenglað og breytt, hulið sjónum, deyft og úr því dregið. Það lifir góðu lífi – en þó engan veginn friðsamlegu – ásamt ást, þrá, virðingu og þörf, sem konur einnig hafa fyrir karla. Ævinlega birtist karlhatrið í skugga tvískinnungsins, tvífara þess, sem er mildari, sveigjanlegri og efasemdum háður.“ Nú geta konur í barneignarhugleiðingum meira að segja sótt sér kvenfrelsunarleiðbeiningar um útvegun sæðis og framfærslu afkvæmisins: Barir eru kjörveiðilendur. Konu í víga- og sæðishug er bent á að táldraga útvalinn fola, ganga inn í sjónmál hans. Tilvalið fórnarlamb kynni að vera karl, sem sýnir áhuga, glápir. Því samkvæmt einni af grunnsetningum kvenfrelsunarfræðanna, er gláparinn greinilegur holdgervingur feðraveldisins, hugsar að mestu leyti með skökli sínum, og ætti þar af leiðandi að vera auðveldur viðfangs í kynþyrstri kúgunarsjálfumgleði sinni. Gefum Helgu Kress orðið: „Karlar skilgreina konur og marka þeim stað með glápi. Á þetta bendir franska fræðikonan Luce Irigaray sem í fjölmörgum ritum sínum hefur fjallað um sjónmálið sem mælistiku karlveldisins á konur. ““Kvenleiki“, segir hún, er hlutverk, ímynd, gildi sem karlar hafa þröngvað upp á konur með því að gera þær að sýningargripum. Nauðugar viljugar verða þær að gangast inn á sjónmálið, ef þær vilja ekki eiga það á hættu að vera utan þess og ekki með í samfélaginu. Þetta hefur í för með sér óvirkni kvenna sem eiga allt undir því að vera fallegur hlutur, eftirsóknarverður líkami. Þær sýna sig og sviðsetja til þess að ná augnaráði karlanna og eru í samkeppni um það. Þannig felur sviðsetningin í sér tvöfeldni, leik og látalæti.“ Og það er til mikils að vinna fyrir sæðissjúka og kúgaða konu; krókur kemur á móti bragði. Henni er leiðbeint um að hjúpa skuli fyðil sæðishafans smokki. Sæðið er síðan notað samstundis með sjálfssæðingu eða fryst í sæðisbanka til síðari nota. Hafni sæðishafinn kynmökum, er boðið upp á tott. Sæðinu er svo leynt í munni sér um stund. Annað tilbrigði með fleiri hlunnindum inniföldum er táldráttur á stefnumótasíðum. Karlar á valdi hefðbundins kynhlutverks, bjóða viðmælendunum nefnilega ósjaldan út að borða. Sé herrann vænlegur til undaneldis, er honum hleypt til. (Sumar kvenna segjast nota þessar síður til að sjá sér farborða jafnvel.) Þriðja meginafbrigðið er að eiga einnar nætur gaman og ljúga til um getnaðarvarnir. Fjórða meginafbrigðið er nauðgun ámóta þeirri og getið er um í Bíblíunni, þegar dætur Lots byrluðu föður sínum ólyfjan og nauðguðu. Konurnar eru í téðum leiðbeiningum minntar á að koma höndum yfir skilríki sæðishafans, skrá þau eða afrita, svo síðar megi gera hann ábyrgan fyrir „gerðum“ sínum og skylda til framfærslu afkvæmisins. Dómstólar dæma konum við þessar aðstæður yfirleitt í vil, bæði hvað varðar meðlag og einkaforsjá til handa móðurinni. Verðandi feður leita bónleiðir til búðar, fari þeir fram á erfðaefnarannsókn eða fóstureyðingu. Í þeim efnum er konan alvöld. (Í einstöku tilvikum hafa konur þó verið dæmdar til að undirgangast slíka rannsókn.) En séu karlar tregir í taumi, þegar hér er komið sögu, má saka þá um nauðgun. En sem kunnugt er (væntanlega), skilgreina öfgakvenfrelsarar alla karlmenn sem ógnvalda (og (nær) alla sem nauðgara): „Allir karlar þurfa ekki að neyta aflsmunar til að koma konum undir. En vitneskjan um, að sumir geri það, er nógsamleg ógn öllum konum. „Hann [karlinn] getur lemstrað eða drepið konuna, sem hann ber yfirlýsta ást til; honum er í lófa lagið að nauðga konum ... hann á hægt um vik að svívirða dætur sínar kynferðislega ... Lungi karlmanna í veröldinni gerir annað hvort eða hvort tveggja.“ (Marilyn French) Konur standa í sjálfu sér jafnt að vígi í þessu efni, en vitaskuld skiptir vald máli í þessu samhengi sem öðru: „Vald mitt til að meiða karlmenn eykst með aukinni frægð [minni] og valdeflingu,“ segir kynþokkadísin, Sharon Stone. Það gerist, að vergjarnar konur geri sér ekki grein fyrir, hvaðan hið frjóvgandi sæði er ættað. Það er almælt á Íslandi. Stundum eru kviðmágar dæmdir til að skipta framfærslubyrðinni. Flestar mæðra velja sér þó einn, enda þótt í Bretlandi t.d. sé þeim í sjálfsvald sett, hvort nafn föður sé uppgefið eða þess getið í fæðingarvottorði. Í slíkum tilvikum axla skattgreiðendur velferðarríkisins framfærslu barnsins alfarið, ef verkast vill. Grunsemdir um faðerni kunna skiljanlega að vakna hjá föðurnum. Þær eiga alloft við rök að styðjast samkvæmt rannsóknum á erfðaefni. Í fjölmiðlum fyrir fáum árum síðan var greint frá tilviki íslensks „föður,“ sem án vitundar móðurinnar lét framkvæma ofannefnda rannsókn. Samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar var hann ekki faðir „dótturinnar.“ Móðir barnsins hafði logið til um faðernið. Varla lýsir slíkt háttalag áhuga móður á því, sem barni hennar er fyrir bestu – og varla jafnrétti og umhyggju fyrir „föður“ og sæðisgjafa. Ungi faðirinn segir: „Fleiri verðandi mæður þurfa að átta sig á að það er betra að feðra barn rétt, heldur en að velja sjálf úr þeim sem koma til greina. Þetta er ákveðið vald sem þær hafa og mér finnst þetta atriði oft gleymast í umræðunni um jafnrétti kynjanna. Það er eins og það sé enn of mikið feimnismál fyrir kvenfólk þegar fleiri en einn koma til greina sem faðirinn. Verðandi faðir á ekki að þurfa að berjast fyrir því með kjafti og klóm að fá faðernispróf.“ Í ofangreindu hátterni kvenna eru ristar rúnir óhamingju barna, feðra (og þeirra sjálfra). Er ekki mál að linni?Höfundur er ellilífeyrisþegi. Þýðing, önnur en í tilvitnun til Helgu Kress, er undirritaðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Sverrisson Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun