Biskupsstofa flytur í gamla húsnæði WOW air Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. júní 2019 21:53 Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Fréttablaðið/Vilhelm
Biskupsstofa hefur tekið á leigu 3. hæð að Katrínartúni 4 á Höfðatorgi í Reykjavík og mun flytja þangað úr Kirkjuhúsinu að Laugavegi 31, að því er fram kemur í tilkynningu á vef þjóðkirkjunnar. Flugfélagið WOW air var áður með skrifstofur í Katrínartrúni 4, einnig á 3. hæð. Öll starfsemi biskupsstofu verður þá sameinuð á einni hæð, þ.m.t. Þjónustumiðstöð biskupsstofu sem nú er til húsa á neðri hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Þá er gert ráð fyrir að Fjölskylduþjónusta kirkjunnar flytjist í núverandi húsnæði Þjónustumiðstöðvarinnar í Háteigskirkju. Reiknað er með að breytingar á húsnæðinu og flutningum verði lokið í haust. „Gert er ráð fyrir að allar aðstæður starfsfólks, trúnaðarmanna kirkjunnar og viðskiptavina batni til muna á nýja staðnum. Aðgengi batnar einnig til muna þar sem aðgangur er að stóru bílahúsi sem er undir byggingunum á Höfðatorgi,“ segir í tilkynningu. Húsnæði biskupsstofu að Laugavegi 31 verður auglýst til sölu um helgina í fjölmiðlum.Biskupsstofa verður til húsa innan rauðmerkta flatarins á myndinni.mynd/biskupsstofa
Reykjavík WOW Air Þjóðkirkjan Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira