„Til þess að kynnast einhverjum stað af alvöru þarf að upplifa hann í öllum mögulegum aðstæðum. Nú ætla ég ekki að hlaupa inn í bíl þegar það byrjar að rigna eða fela mig í tjaldinu þegar það er rok,“ skrifar Burkard á Instagram þar sem hann er afar vinsæll, með um 3,6 milljónir fylgjenda.
Burkard keppir í Solo-flokki sem þýðir að hann er einn í liði. Því þarf hann að hjóla kílómetrana 1358 alveg sjálfur og segist hann hafa sett sér það markmið að ná hringnum á 60 tímum.Fylgjast má með hjólreiðum Burkard á Instagramþar sem fylgdarlið hans skrásetur ferðalagið, en Burkard lagði af stað í morgun.
To truly know a place you have to allow yourself to experience it under all conditions. No more running to the car when it starts to piss rain or zipping up the tent flap when it’s windy. I have been to Iceland 34 times and always felt a need to give piece of myself to the places I love. So in the name of “vision quests” or bucket list items or simply getting way outside your comfort zone I signed up to race 843 miles nonstop around the entire island on the famous ring road as apart of the @wowcyclothon . I am shooting for a 60 hour (ish) finish which doesn’t leave much time for sleep. I’ll be offline but can feel y’alls support! Thanks to my wife @brea_face for the endless patience during training, @handsomerobinson for coming out to support me & taking over my IG stories to document. Link to track my progress is in my bio. @iamspecialized @hammernutrition @envecomposites @isak4x4icelandView this post on Instagram
A post shared by ChrisBurkard (@chrisburkard) on Jun 25, 2019 at 11:51am PDT
Í viðtali við Burkard sem birtist á vef Inertia árið 2016 kemur fram að þeir hafi ekki þekkst þegar Burkard fékk fyrirspurnina frá Bieber en áður en hann vissi af var Burkard lagður af stað með kanadíska söngvaranum til Íslands.
Íslandsheimsókn Bieber árið 2015 vakti gríðarlega athygli enafrakstur ferðarinnar við tónlistarmyndband við lag Bieber, I'll Show Youog er Burkard sagður hafa skotið meginhluta myndbandsins. Í myndbandinu má sjá Bieber í íslenskri náttúru og er óhætt að segja að myndbandið hafi reynst gríðarleg landkynning fyrir Ísland, enda hefur verið horft á það í um 450 milljón skipti á Íslandi.
Myndbandið átti þó eftir að draga dilk á eftir sér þar sem því hefur meðal annars verið kennt umgríðarlega ásókn ferðamanna í Fjaðrárgljúfur, en Umhverfisstofnun hefur þurft að grípa til þess ráðs að loka gljúfrinu vegna hættu á skemmdum sökum mikillar umferðar um svæðið.
Önnur myndin er úr umræddu tónlistarmyndbandi poppstjörnunnar Bieber. Hin myndin, sem tekin var í janúar 2018, sýnir skilti við snösina þar sem tilkynnt er um lokun svæðisins.
Ekki verður annað sagt en munurinn á því hvernig svæðið var fyrir Bieber og svo eftir hann sé sláandi eins og sjá má í færslunni hér fyrir neðan.