Furða sig á vægi verðtryggingar í kjarasamingum Jakob Bjarnar skrifar 3. apríl 2019 16:11 Ýmsir, þeirra á meðal Gylfi Magnússon og Helgi Seljan, eiga erfitt með að sjá hvernig bann við verðtyggðum lánum komi sér vel fyrir ungt fólk. Afnám verðtryggingar hefur verið eitt helsta baráttumál Ragnars Þórs Ingólfssonar.
Eins og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR sagði í samtali við Vísi fyrr í dag þá hefði hann viljað ná fram afdráttarlausara samkomulagi um verðtrygginguna en því sem stjórnvöld voru reiðubúin að bjóða. Innan Hagsmunasamtaka heimilanna, hvar Ragnar Þór hefur starfað, gætir nokkurrar óánægju með þetta en bann við verðtryggingu fasteignalána er atriði sem fólk þar á bæ telur vert að sett sé á oddinn í þeim kjarasamningum sem væntanlega verða undirritaðir nú á næstunni.Hótun um bann við verðtryggðum lánum Gylfi Magnússon dósent í hagfræði við Háskóla Íslands á hins vegar erfitt með að sjá hvernig það má gagn gera þegar litið er til hags þeirra sem verst eru settir í þessu samfélagi. Og þá ekki síður í því sem snýr að stöðu ungs fólks. „Eitt af því sem hefur verið hótað undanfarna daga í tengslum við kjarasamninga er að banna verðtryggð lán til lengri tíma en 25 ára. Veit ekki hvort það er rétt en það er erfitt að sjá einhvern ávinning fyrir nokkurn mann af því, sérstaklega ekki ungt fólk sem er að kaupa sitt fyrsta húsnæði,“ segir Gylfi í pistli sem hann birti fyrr í dag. Gylfi tekur dæmi: „25 ára gamalt par tekur 30 milljón króna lán til 40 ára til að kaupa sína fyrstu íbúð. Þá þarf að borga um 96 þús. á mánuði af láninu í hverjum mánuði miðað við þá vexti sem nú bjóðast (upphæðin hækkar svo með verðbólgu en á móti kemur að hver króna er minna virði svo að það breytir litlu). Þau verða þá búin að greiða niður lánið um það leyti sem þau fara á eftirlaun, sem hentar líklega ágætlega. Ef þau eru hins vegar neydd í 25 ára lán þá þarf að borga 132 þús. á mánuði (og ef þau eru neydd í óverðtryggt 25 ára lán þyrftu þau að borga 152 þús. á mánuði). Það er vitaskuld töluvert erfiðara og gæti jafnvel verið óviðráðanlegt.“Helgi Seljan, segir það svo vera að hann hefði aldrei eignast íbúð ef ekki væri fyrir verðtryggð húsnæðislán.Helgi Seljan hefði aldrei getað eignast íbúð Gylfi segir vert að hafa hugfast að tekjur hækka almennt með aldri; „fram að miðjum aldri, þannig að fólk á þrítugsaldri hefur líklega lágar tekjur og framundan eru, ef að líkum lætur, töluverð útgjöld vegna barneigna. Parið verður hins vegar búið að borga lánið um fimmtugt, þegar tekjur flestra eru nálægt hámarki og útgjöldin töluvert lægri, t.d. verður þá ólíklega verið að greiða mikið vegna barnaheimila. Það er ekki heil brú í því að þrengja að ungu fólki til að það hafi það betra þegar það verður miðaldra!“ Fleiri hafa furðað sig á þessari áherslu verkalýðshreyfingarinnar á hin verðtryggðu lán. Eiga menn erfitt með að sjá hvernig þau snerta svo mjög hag þeirra sem verst standa, leigjenda og ungs fólks. Einn þeirra er Helgi Seljan sjónvarpsmaður, sem fjallar um þetta á sinni Facebooksíðu. „Ég vona að þessu fylgi bæði sviðsmynd og raunveruleiki sem gefi af sér lægri vexti og greiðslubyrði til handa íbúðakaupendum.Því án 40 ára verðtryggðs láns hefði ég að minnsta kosti seint getað komist í eigið húsnæði í fyrsta sinn,“ skrifar Helgi og segist ekki vera að verja verðtrygginguna. Hún skiptir engu máli ein og sér. „Kostnaðurinn við að fá peninga að láni, verður alltaf aðalmálið. Og ef önnur leiðin er bönnuð er eins gott að hin verði hagstæðari og í raun öllum fær. Ég er ekki fjármagnseigandi nema í gegnum lífeyrissjóð. Ég lít hvorki á það sem alls herjar lausn að viðhalda verðtryggingu eða það að banna hana. Mér er skítsama hvað þetta system heitir, bara ef hægt er að skila hér sanngjörnum vöxtum, viðráðanlegri greiðslubyrði og allra helst vali um það hvort ég kaupi eða leigi, með það síðarnefnda sem raunhæfan öruggan kost.“
Kjaramál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Hefði viljað ákveðnari lendingu um verðtryggingu Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ætla að fylgja samkomulagi um verðtryggingu fast á eftir. 3. apríl 2019 12:10 Bein útsending: Skrifað undir kjarasamninga í Karphúsinu Til stendur að skrifa undir kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins við nítján félög innan Starfsgreinasambandsins, VR og önnur félög innan Landssambands verslunarmanna síðdegis í dag. 3. apríl 2019 14:58 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira
Hefði viljað ákveðnari lendingu um verðtryggingu Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ætla að fylgja samkomulagi um verðtryggingu fast á eftir. 3. apríl 2019 12:10
Bein útsending: Skrifað undir kjarasamninga í Karphúsinu Til stendur að skrifa undir kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins við nítján félög innan Starfsgreinasambandsins, VR og önnur félög innan Landssambands verslunarmanna síðdegis í dag. 3. apríl 2019 14:58