Lífið

Brotist inn á samfélagsmiðlareikninga Áttunnar: „Útrýming Áttunnar“

Sylvía Hall skrifar
Sólborg Guðbrandsdóttir, Þórir Geir Guðmundsson og Hildur Sif Guðmundsdóttir.
Sólborg Guðbrandsdóttir, Þórir Geir Guðmundsson og Hildur Sif Guðmundsdóttir. Áttan
Brotist var inn á samfélagsmiðlareikninga Áttunnar í kvöld og öllu efni sem þar var að finna eytt út. Instagram-síða hópsins er nú auð fyrir utan myndband sem hakkarinn birti þar sem hann segist hafa eytt út „öllu Áttu draslinu“.

Auk Instagram-síðunnar var einnig brotist inn á YouTube-reikning hópsins og eru nú tónlistarmyndbönd á borð við „Neinei“ og „Ekki seena“ hvergi sjáanleg. Myndbönd Áttunnar hafa hlotið mikið áhorf á YouTube og var „Neinei“ eitt vinsælasta lag ársins 2017 með meira en milljón áhorf.

Á Instagram-reikning Áttunnar, attan_official, er líkt og fyrr sagði búið að eyða út öllum myndböndum hópsins og birta í staðinn myndband þar sem grímuklæddur maður segist standa á bakvið árásina. Myndbandið birtist einnig á YouTube-síðu Áttunnar undir heitinu „Útrýming Áttunnar“ og birtist þar grímuklæddur maður sem segir Áttuna vera allt það sem er að í nútíma samfélagi.

Svona lítur Instagram-síða Áttunnar út eftir að öllu var eytt út. Eina sem stendur eftir er myndbandið sem boðar útrýmingu Áttunnar.Skjáskot

Komst að þessu á sama tíma og allir aðrir

Nökkvi Fjalar Orrason, einn af stofnendum Áttunnar, vissi ekki hvað hefði átt sér stað þegar Vísir náði af honum tali nú fyrir skömmu. Allt í einu hafði hann farið að fá skilaboð um að efni hópsins hefði verið eytt af samfélagsmiðlareikningum þeirra og síminn hafi varla stoppað síðan.

„Við erum bara í smá sjokki yfir þessu. Það er búið að henda öllu út, „Neinei“ og allt er farið út,“ sagði Nökkvi í samtali við Vísi. Hann segir það rosalegt sjokk að myndböndunum hafi verið eytt og þetta hafi komið hópnum gríðarlega á óvart.

„Við sáum þetta bara á sama tíma og allir aðrir. Við erum eitthvað að skoða þetta,“ sagði Nökkvi en grínaðist þó með að hann grunaði að einhver væri að gera sér grikk. Hann viti þó ekkert hver standi á bakvið samfélagsmiðlaárásina svokölluðu og biðlar til fólks að hafa samband við sig hafi það einhverjar upplýsingar.

Hér að neðan má sjá myndbandið sem birtist á miðlum Áttunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.