Innlent

Hár styrkur köfnunar­efnis­díoxíðs í Reykja­vík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur fólk til að draga úr akstri eins og unnt er og nýta sér almenningsamgöngur og aðra vistvænni ferðamáta til að draga úr mengun.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur fólk til að draga úr akstri eins og unnt er og nýta sér almenningsamgöngur og aðra vistvænni ferðamáta til að draga úr mengun. vísir/vilhelm
Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í Reykjavík í dag samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Í tilkynningu frá borginni hefur styrkur efnisins verið hár undanfarna daga.

„Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra.  

Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.  

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur fólk til að draga úr akstri eins og unnt er og nýta sér almenningsamgöngur og aðra vistvænni ferðamáta til að draga úr mengun,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×