Stysti dagur ársins í dag Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. desember 2018 06:24 Stysti dagur ársins er í dag svo við sjáum meira af mánanum en sólinni. vísir/vilhelm
Vetrarsólstöður verða klukkan 22:23 í kvöld sem þýðir að dagurinn fram undan er sá stysti á árinu.Að því er fram kemur á Stjörnufræðivefnum þýðir þetta að halli norðurhvels Jarðarinnar frá sólu er mestur á þessum tíma þannig að sólin er lægst á lofti frá okkur séð og birtustundirnar því fæstar. Eftir daginn í dag tekur svo að birta á ný. Í dag mun sól rísa klukkan 11:22 í Reykjavík en svo sest hún klukkan 15:29. Birtustundirnar verða því aðeins fjórar klukkustundir og sjö mínútur en eftir tæpan mánuð verða birtustundirnar orðnar rúmlega fimm svo dagurinn lengist býsna hratt. Á Akureyri rís sólin í dag klukkan 11:38 og sest svo klukkkan 14:42. Full dagsbirta er því þar í einungis þrjár klukkustundir og fjórar mínútur en í Grímsey eru birtustundirnar fæstar, aðeins rúmlega tveir klukkutímar. „Vetrarsólstöður marka upphaf vetrar á norðurhveli en upphaf sumars á suðurhveli – ef við skilgreinum árstíðirnar milli sólstaða og jafndægra,“ segir á Stjörnufræðivefnum þar sem lesa má meira um vetrarsólstöður.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira