Alfonso Cuarón er frumlegur og fjölbreytilegur í efnisvali og á að baki jafn ólíkar myndir og Children of Men, Harry Potter and the Prisoner of Azkaban og Gravity sem skilaði honum Óskarsverðlaunum fyrir leikstjórn 2014.
Roma er öllu jarðbundnari en þessar þrjár og einnig sú persónulegasta sem hann hefur gert. Myndin gerist upp úr 1970 í Roma-hverfi Mexíkóborgar þar sem Cuarón ólst upp og ekki leynir sér að myndin er um margt sjálfsævisöguleg.
Myndin fjallar um ósköp venjulega fjölskyldu sem býr þar ásamt tveimur ráðskonum sínum. Þegar röð atvika ógnar tilveru fjölskyldunnar leggur önnur ráðskonan sig alla fram um að halda friðinn á meðan hún þarf að takast á við eigin vandræði.
Efnisveitan Netflix frumsýnir Roma á föstudaginn en hún hefur þegar verið sýnd á kvikmyndahátíðum og í sérvöldum kvikmyndahúsum, meðal annars á Íslandi í Bíó Paradís. Roma var frumsýnd á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þar sem hún vann hin eftirsóttu verðlaun Gullna ljónið. Þá var hún sýnd nýlega á Kvikmyndahátíðinni í New York og BFI-hátíðinni í London.

Ein magnaðasta mynd síðari ára
„Roma er bíóupplifun ársins,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Bíó Paradís, og fer ekki leynt með að hún er bæði stolt og ánægð með að hafa fengið tækifæri til þess að bjóða upp á myndina á breiðtjaldi.
„Myndataka og hljóðheimur myndarinnar er eitthvað sem fólk verður að njóta í bíó og við erum mjög ánægð að geta boðið upp á það tækifæri. Þetta er myndin sem mun vinna Óskarinn sem besta erlenda myndin og er án efa ein af mögnuðustu myndum síðustu ára,“ segir Hrönn og bætir við að samningar hafi náðst um sýningar á myndinni í Paradís til 22. desember þótt hún verði orðin aðgengileg á Netflix.
Roma er svarthvít, á spænsku og leikararnir eru nánast óþekktir úti í hinum stóra heimi þannig að Cuarón gerði sér grein fyrir því að það yrði á brattann að sækja ef myndin væri aðeins sýnd í kvikmyndahúsum og þannig blandast Netflix í málið.

Ekta bíómynd
Viðbrögð gagnrýnenda og áhorfenda benda síðan eindregið til þess að Netflix hafi þarna veðjað á réttan hest þar sem talið er víst að Roma verði sterkasta Óskarsverðlaunatromp veitunnar og líklega fyrsta Netflix-myndin sem mun hljóta tilnefningu sem besta myndin.
Hrönn er ekki ein á báti þegar hún leggur ofuráherslu á að fólk horfi á Roma í kvikmyndahúsi. Leikstjórinn Edgar Wright (Scott Pilgrim vs. the World, Hot Fuzz, Baby Driver) er einn þeirra sem heilluðust af Roma þegar hún var sýnd í London og hann hefur látið þau boð út ganga, um leið og hann eys myndina lofi, að ekkert annað komi til greina en að upplifa hana í bíó.
Wright segir myndina vera sláandi og að hún sé í senn innileg, persónuleg og ofboðslega víðfeðm. „Ég vildi sökkva mér aftur ofan í hana um leið og hún var búin. Hún krefst þess að horft sé á hana af stóra tjaldinu.“