Gagnrýni

Gagnrýni

Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.

Fréttamynd

Allir komust lifandi út – nema Beethoven

Þegar tónskáldin Alexander Skrjabín og Níkolaj Rimskí-Korsakov sátu eitt sinn að snæðingi upphófst mikið rifrildi. Ástæðan? Liturinn á E-dúr. Báðir voru þeir gæddir svokallaðri samskynjun (e. synesthesia) og voru fyllilega sammála um að tóntegundin væri blá – spurningin var bara hvort hún væri djúpblá eins og safír eða fölblátt mánaskin. Við borðið sat einnig kollegi þeirra, Sergej Rakhmanínoff, grjótharður raunsæismaður sem fussaði hneykslaður yfir slíku andlegu bulli. Fyrir honum voru nótur einfaldlega nótur og ekkert annað. Hefði Víkingur Heiðar mætt í þetta sögulega matarboð hefði kvöldið vafalítið endað í slagsmálum. Hann er nefnilega líka með samskynjun, en ólíkt rússnesku meisturunum er E-dúr fyrir honum grænn.

Gagnrýni

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hug­ljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor

Project Hail Mary er hugljúft geimævintýri um óvænt vinasamband í geimnum. Spennandi atburðarás, frábær leikmynd og leikarar sem kunna sitt fag halda áhorfendum við efnið þó lokahlutinn sé dálítið langdreginn. Stöðugur þúsaldarhúmorinn er þó fullfyrirferðarmikill og dregur úr dramatískari augnablikum.

Gagnrýni
Fréttamynd

KK átti salinn - en tón­listin varð út­undan

Það fylgir því ávallt ákveðin hætta á samfélagslegri útskúfun að setja sig í stellingar gagnrýnanda þegar kemur að ástsælustu þjóðargersemum okkar Íslendinga. Að ætla sér að beina gagnrýnum sjónum að svo rótgrónum og vinsælum útvarpsþáttastjórnanda og tónlistarmanni og Kristjáni Kristjánssyni er eins og að sparka í lunda. Maður einfaldlega gerir ekki svoleiðis. Nema maður sé tilbúinn að taka afleiðingunum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Öskrað á of litlu sviði

„Er þessi heimur besti heimur allra heima?“ er spurningin sem bjartsýnismaðurinn Birtingur veltir fyrir sér í nýjum söngleik Leikfélags Akureyrar sem byggður er á skáldsögu Voltaire. Það er leikhússtjórinn sjálfur, Bergur Þór Ingólfsson, sem leikstýrir, þýðir og semur leikgerðina og má segja að sýningin reyni ekki bara á leikarana heldur einnig samkomuhúsið sjálft – sem komið er til ára sinna.

Gagnrýni
Fréttamynd

Lengsti klukku­tími ævinnar

Kvikmyndin Dimmalimm fjallar um konu sem lokar sig inni í íbúð sinni í Vínarborg og tekst á við eigin geðveiki. Myndin er rétt rúmur klukkutími en líður ofurhægt vegna klisjukennds handrits, skorts á framvindu og langdreginna teygðra sena. 

Gagnrýni
Fréttamynd

Reim­leikar í húsinu eða röskun í heilanum?

Röskun er óhugnarlegur og myrkur sálfræðitryllir um unga konu sem flytur inn í kjallaraíbúð og upplifir undarlega atburði. Er hennar eigin röskun að verki eða eitthvað þaðan af verra? Myndin er ágætlega fléttuð og vel leikin en líður fyrir endurtekningarsemi og skort á persónusköpun.

Gagnrýni
Fréttamynd

Óperan lifir á ís­lensku

Það eru sannarlega áhugaverðir tímar í íslenska óperuheiminum um þessar mundir. Á meðan við bíðum eftir því hvað kemur undan hatti nýstofnaðar Óperu Þjóðleikhússins geta unnendur óperuformsins kíkt á sýningar sjálfstæðra óperuleikhópa. Í Borgarleikhúsinu setur leikhópurinn Óður stórvirkið La Bohéme á svið og í Tjarnarbíói er það Carmen í uppfærslu Kammeróperunnar. Þetta eru ólíkar sýningar en eiga þó eitt sameiginlegt – þær eru settar upp af ástríðu, metnaði og sungnar á íslensku.

Gagnrýni
Fréttamynd

Dillandi danskur Bond til bjargar blokkinni

Dönsk leyniþjónustukona flytur í íslenska blokk til að komast í kyrrð og ró en getur ekki setið auðum höndum og fer að vasast í málum íbúa með misjöfnum árangri. Danska konan er ferskur andblær í íslensku sjónvarpi með skemmtilegum stílbrögðum, kostulegum hasarsenum og stjörnuframmistöðu Trine Dyrholm.

Gagnrýni
Fréttamynd

Krakkaskaup fyrir full­orðna

Ekki hugmynd er gamanleikur úr smiðju Gaflaraleikhússins sem fjallar um tilvistarkreppu þriggja einstaklinga á þrítugsaldri. Fjármál, íbúðarkaup, ástardrama og endalaus valkvíði er það sem er þremenningunum efst í huga. Þetta er ágætlega fyndið og skemmtilegt uppistand en aðeins miðlungsgott leikrit.

Gagnrýni
Fréttamynd

Fegurðar­dýrkun í Oz-landi

Nýjasta sýning Borgarleikhússins er barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz eftir L. Frank Baum. Þetta er stór sýning með fjölda leikara. Ungir krakkar fá tækifæri til að sýna listir sínar í leik, söng og dansi og eldri leikarar, reynsluboltar í faginu, virðast skemmta sér vel í þessu klassíska verki sem hefur ýmsar tengingar við samtímann. Þetta er ekki uppsetning sem reynir að ögra heldur er skemmtunin í forgrunni og ekki teknir neinir sjensar.

Gagnrýni
Fréttamynd

Ó­bilandi trú á eigin á­gæti

Bólugrafinn og renglulegur með samvaxnar augabrúnir og hormottu, hrokafullur, hraðlyginn og hvatvís, kjaftfor, sjálfumglaður og ódrepandi við að ná markmiði sínu: að verða sá besti í heimi, sama hvað það kostar.

Gagnrýni
Fréttamynd

Er Orms­tunga djarfasta sýning ársins?

Það er ákveðin bilun fólgin í því að skapa „rapp-söngleik“ byggðan á Íslendingasögu. Þjóðleikhúsið ákvað hins vegar að henda sér beint í djúpu laugina án kúts. Útkoman er vægast sagt eggjandi, enda voru fagnaðarlætin á frumsýningunni mikil.

Gagnrýni
Fréttamynd

Rasistar í sumar­bú­stað

Íslensk hjón í sumarbústað lenda í hremmingum þegar myndlistarmaður, dökkur á hörund, sest að fyrir utan heimkeyrsluna að bústaðnum þeirra. Tilvist þessa dularfulla aðkomumanns afhjúpar fáfræði, ótta og fordóma hinna íslensku hjónakorna í nýju leikriti eftir Þór Tulinus sem sýnt er þessa dagana í Tjarnarbíói. Þetta er ekki sýning sem skilur mikið eftir sig, handritið er gallað og það vantar skýrari listræna sýn.

Gagnrýni
Fréttamynd

At­vinnu­laus aumingi trompar dauðakölt

Fjölskyldufaðir sem missir vinnuna hjá pappírsfyrirtæki eftir áratuga starfsferil grípur til blóðugra örþrifaráða. Ungur drengur lendir í félagsskap satanísks gengis sem ráfar um uppvakningahrjáð England. Mennirnir tveir glíma við ólíka djöfla en lenda báðir í kröppum dansi.

Gagnrýni
Fréttamynd

Við þurfum að ræða Sydney Sweeney

Ung kona sem hefur ekki átt sjö dagana sæla virðist hafa dottið í lukkupottinn þegar hún fær óvænt starf sem húshjálp hjá ríkum hjónum. Fljótt renna á hana tvær grímur þegar húsfreyjan fer að haga sér undarlega og ýmis ljót leyndarmál koma upp á yfirborðið. The Housemaid er hressandi, subbulegur sálfræðitryllir sem líður fyrir ósannfærandi aðalleikkonu í Sydney Sweeney.

Gagnrýni
Fréttamynd

Móðurmorð í blóðugu jólaboði

Það er alltaf eftirvænting í loftinu á jólafrumsýningu Þjóðleikhússins. Þetta er ekki fjölskylduvænasta jólahefðin, hvorki fyrir áhorfendur né leikara. En sérstakt er það – að mæta í leikhúsið á annan í jólum, sumir komnir beint úr jólaboðum og gleyma sér í leikhúsinu. Jólasýningin í ár var Óresteia. Um fjögurra klukkutíma leikrit eftir Benedict Andrews byggt á blóðugri grískri tragedíu. Og hvað er jólalegra eða íslenskara en fjölskylduharmleikur á jólum? Hvorki leikrit eða leikstjórn Benedict Andrews olli mér vonbrigðum. Þetta var alvöru kjaftshögg á hátíð ljóss og friðar. Sýning sem lætur engan ósnortinn – þá sem treysta sér að mæta það er að segja.

Gagnrýni
Fréttamynd

Úr öskunni í eldinn

James Cameron býður áhorfendum í þriðja sinn til Pandóru að fylgjast með Na'vi-fólkinu berjast gegn ofsóknum mannanna. Sjónarspilið, hasarinn og tæknibrellurnar eru fyrsta flokks þó formúlan sé farin að þynnast. Aðdáendur seríunnar til þessa verða ekki sviknir en vantrúaðir verða heldur ekki sannfærðir úr þessu. 

Gagnrýni
Fréttamynd

Upp­hitaðir afneitunarafgangar Frosta

Eftir að hafa fundið lausn á Covid-19 og peningamálum á Íslandi er fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins búinn að komast að því að loftslagsvísindamenn heimsins hafi allir rangt fyrir sér um loftslagsbreytingar.

Gagnrýni
Fréttamynd

Að­eins of leiðin­legt til að vera skemmti­legt

Áhorfendur fylgjast með hinum leiðinlega Felix fá hverja delluna á fætur annarri með þeim afleiðingum að hann verður sér til skammar eða er skammaður af konu sinni, Klöru. Kringumstæðurnar eru grátbroslegar en hvorki grínið né aukapersónurnar eru nægilega sterkar til að veita leiðindum Felix nægilegt mótvægi. Felix er svo plássfrekur að áhorfendur kynnast Klöru aldrei almennilega.

Gagnrýni