Þóra Kristín borin af velli: Óttast um slitna hásin Anton Ingi Leifsson skrifar 17. desember 2018 21:54 Þóra borin af velli. vísir/einar
Þóra Kristín Jónsdóttir, leikmaður Hauka, var borin af velli er Haukar spiluðu við Grindavík í Geysisbikar kvenna í körfubolta í kvöld. Þóra var búin að fara á kostum í leiknum en hún var komin með 25 stig er hún meiddist í samstuði við einn leikmann Grindavíkur er Þóra kastaði sér á eftir boltanum. Hún virtist lenda illa og lá eftir. Í samtali við Vísi í leikslok sagði Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, þjálfari liðsins, að það væri óvíst hversu lengi Þóra Kristín væri frá en hún sagði að sjúkraþjálfararnir hafi óttast um að landsliðskonan væri með slitna hásin. Hún vonaðist þó eðlilega eftir betri tíðindum en hún reiknaði með frekari tíðindum síðar í kvöld. Haukarnir höfðu betur í leiknum gegn Grindavík í kvöld en þetta er mikið áfall fyrir Hauka ef Þóra verður lengi frá, eins og allt lítur út fyrir. Hún hefur verið að meðaltali með rúmlega þrettán stig í vetur en auk þess hefur hún gefið sex fráköst og gefið fimm stoðsendingar. Framlag upp á tæplega fimmtán en Haukar eru í næst neðsta sæti deildarinnar. Einnig var hún þriðja í vali á körfuboltakonu ársins sem var tilkynnt í dag.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Íslenski boltinn Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Íslenski boltinn Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Jokic rekinn út úr húsi og Denver á bjargbrúninni Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Sjá meira