Landréttur staðfesti í dag þriggja ára og níu mánaða fangelsisdóm yfir Einari Ágústssyni, öðrum svonefndra Kickstarter bræðra. Einar var sakfelldur fyrir að hafa svikið tugi milljóna króna út úr fjórum einstaklingum.
Fólkið lét Einar fá samtals 74 milljónir króna í þeirri trú að það færi til fjárfestingarsjóðs Einars í Bandaríkjunum. Ákæruvaldið hélt því fram að sjóðurinn hafi aldrei verið starfræktur í eiginlegri mynd. Einn fjórmenninganna lét Einar fá 44 milljónir króna.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness í júní í fyrra sem Landsréttur staðfesti í dag kom fram að Einar ætti sér engar málsbætur. Brotavilji hans hefði verið einbeittur og brot hans „skipulögð og úthugsuð.“ Hægt væri að slá því föstu að fjárfestingarsjóðurinn sem hann sagði fólkinu að hann starfrækti hefði í raun ekki verið starfræktur.
Félag Einars, Skajaquoda ehf., var einnig dæmt í málinu til þess að þola upptöku á rúmum 74 milljónum króna sem hald var lagt á. Einar neitaði sök og áfrýjaði dómi héraðsdóms til Landsréttar.
Landréttur dæmdi Einar jafnframt til að greiða allan málskostnað, rúmar tvær milljónir króna.
Stöðvuð Kickstarter-söfnun og stofnun trúfélags
Einar og bróðir hans Ágúst Arnar Ágústsson vöktu fyrst athygli fyrir safnanir fyrir nýsköpunarverkefni á bandarísku hópfjármögnunarsíðunni Kickstarter. Einni þeirra var síðar lokað þegar tæpar tuttugu milljónir króna höfðu safnast. Kickstarter sagði í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis á dögunum að fyrirtækið gæti ekki tjáð sig um ástæður þess að söfnuninni var lokað vegna samstarfs við löggæsluyfirvöld.
Um svipað leyti kom fram að bræðurnir voru til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara sem þá hét vegna mögulegra gjaldeyrisbrota. Einar var síðar ákærður fyrir fjársvikamálið sem dómur er nú fallinn í.
Einar var einnig ásamt bróður sínum einn stofnenda trúfélagsins Zuism sem styr hefur staðið um. Ágúst Arnar er nú forstöðumaður félagsins sem hefur fengið tugi milljóna króna úr ríkissjóði í formi sóknargjalda undanfarin tvö ár.