Dyche: Jóhann Berg er klár í slaginn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2018 16:10 Jóhann Berg í baráttu við Leroy Sane hjá Manchester City. Vísir/Getty
Jóhann Berg Guðmundsson hefur náð heilsu og er klár í slaginn þegar Burnley leikur gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Jóhann meiddist í markalausu jafntefli gegn Leicester fyrr í þessum mánuði og missti af þeim sökum af báðum landsleikjum Íslands í nóvember, gegn Belgíu og Katar. Hann var heldur ekki í hópi Burnley í 2-1 tapi gegn Newcastle á mánudagskvöldið. Burnley hefur ekki náð sömu hæðum og á síðasta tímabili en liðið hefur unnið aðeins tvo leiki í ár, síðast í lok september. Síðan þá hefur liðið leikið sex deildarleiki í röð án sigurs og er einu stigi frá fallsæti. Jóhann Berg hefur verið fastamaður í liði Burnley þegar hann hefur verið heill og spilað ellefu leiki á tímabilinu. Hann hefur skorað í þeim tvö mörk og lagt upp fjögur. Hann hefur því komið að sex af þrettán mörkum Burnley á tímabilinu með beinum hætti. Hér fyrir neðan má heyra upptöku frá blaðamannafundi Dyche í dag þar sem hann fer yfir gengi síðustu vikna og stöðu liðsins í deildinni í dag.Klippa: Blaðamannafundur Sean Dyche
Dominos-deild karla Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Fleiri fréttir „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund Sjá meira