Fá mál sögð standa í vegi útgöngusamnings Kjartan Kjartansson skrifar 13. nóvember 2018 16:26 Bretar ætla að ganga úr Evrópusambandinu í lok mars á næsta ári. Vísir/EPA
Forsætisráðuneyti Bretlands segir að „fá mál“ standi nú í veg þess að Bretar og fulltrúar Evrópusambandsins nái sátt um útgöngusamning. Viðskiptaráðherrann segir hins vegar „erfiðar viðræður“ enn standa yfir um landamærin við Írland.Breska ríkisútvarpið BBC segir að Theresa May forsætisráðherra hafi gefið ríkisstjórn sinni skýrslu um stöðu viðræðnanna. Bjartsýni ríki beggja vegna samningsborðsins í Brussel. Aðeins „fá útistandandi mál“ séu eftir í tilraunum ríkisstjórnarinnar til þess að ná fram sem „bestum texta“ í samninginn. Stærsta málið sem eftir stendur er hvernig landamærum Írlands, sem er í Evrópusambandinu, við Norður-Írland, sem er hluti Bretlands, verður háttað eftir útgönguna. Bæði Bretar og Evrópusambandið vilja forðast í lengstu lög að koma þurfi upp sjáanlegu landamæraeftirliti þar. Liam Fox, viðskiptaráðherra Breta, er sagður hafa sagt samráðherrum sínum að enn væru erfiðar viðræður eftir við ESB um samband Írlands og Norður-Írlands. Til stendur að halda sérstakan leiðtogafund síðar í þessum mánuði til þess að skrifa undir útgöngusamning. Fulltrúar ESB segja hins vegar að ekkert verði af fundinum nema að samkomulag náist um írsku landamærin áður. Óljóst er hvort að May hefur stuðning þingsins, og eigin flokks, við samning við Evrópusambandið.
Bretland Brexit Evrópusambandið Írland Norður-Írland Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira