Bíó og sjónvarp

Vinna að framhaldi Gladiator

Birgir Olgeirsson skrifar
Russell Crowe fékk Óskarinn fyrir leik sinn í Gladiator.
Russell Crowe fékk Óskarinn fyrir leik sinn í Gladiator. IMDB
Leikstjórinn Ridley Scott hefur hafið vinnu við að koma framhaldi Óskarsverðlaunamyndarinnar Gladiator í bíó. Greint er frá þessu á vef Deadline en þar er Peter Craig sagður skrifa handritið.

Gladiator sagðir frá rómverska hershöfðingjanum Maximus, leikinn af Russell Crowe, sem er svikinn af Commodus keisara Rómar og skilinn eftir nær dauða en lífi á meðan fjölskylda hans var myrt á hrottalega hátt. Hann er neyddur til að gerast skylmingaþræll eftir að hafa verið handsamaður af þrælahöldurum. Hann nær þannig gífurlegri hylli og endar aftur í Róm þar sem hann hyggur á hefndir.

Myndin hlaut fimm Óskarsverðlaun, þar á meðal besta mynd og Russell Crowe besti leikari, og þénaði um 460 milljónir dollara í miðasölu kvikmyndahúsa.

Ekki er vitað hvert sögusvið framhaldsmyndarinnar verður þar sem að Maximus lætur lífið í þeirri fyrstu.

Deadline heldur því þó fram að myndin muni fjalla um Lucius, son Lucillu sem var systir CommudsarMaximus bjargaði lífi Lucillu og Luciusar og hafði því mikil áhrif á drenginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.