Daði, Margrét og Sandra til liðs við Florealis Atli Ísleifsson skrifar 5. nóvember 2018 10:17 Sandra Mjöll Jónsdóttur-Buch, Margrét Bessadóttir og Daði Hannesson. Mynd/Florealis
Lyfjafyrirtækið Florealis hefur ráðið þau Daða Hannesson, Margréti Bessadóttur og Söndru Mjöll Jónsdóttur-Buch til starfa. Í tilkynningu frá fyrirtækinu er haft eftir Kolbrúnu Hrafnkelsdóttur að sterkur vísindalegur bakgrunnur starfsmannanna geri félaginu kleift að stunda öfluga vöruþróun. Stefnt sé að hröðum vexti með auknu framboði af jurtalyfjum sem byggi á vísindalegum grunni og sókn á nýja markaði á Norðurlöndunum. „Daði Hannesson, fjármálastjóri, er með M.Sc. gráðu í fjármálum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og M.Acc. gráðu frá Háskóla Íslands. Daði hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum en undanfarin 13 ár hefur hann starfað við fjármálastjórn og á fjármálamarkaði við fjármögnun og breytingar á eignarhaldi fyrirtækja. Dr. Margrét Bessadóttir, gæðastjóri, ber ábyrgð á uppbyggingu gæðakerfis félagsins. Hún er með M.Sc gráðu í lyfjafræði og doktorsgráðu í líf-og læknavísindum frá Háskóla Íslands og hefur meðal annars stundað rannsóknir á sviði náttúruefna. Margrét hefur breiðan bakgrunn á sviði lyfjafræði bæði innan háskólasamfélagsins og lyfjaiðnaðarins. Hún hefur haldgóða þekkingu á gæðastjórnun í lyfjaiðnaði og vann meðal annars í gæðadeild lyfjafyrirtækisins Actavis. Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, vörustjóri, er lífeindafræðingur og með doktorsgráðu í líf- og læknavísindum frá Háskóla Íslands. Hún stofnaði sprotafyrirtækið Platome og leiddi það þar til hún gekk til liðs við Florealis. Hún mun hafa yfirumsjón með því að byggja upp heildstæða og sterka vörulínu Florealis, allt frá fyrstu hugmynd til markaðar.“ Níu starfsmenn starfa nú hjá Florealis.
Vistaskipti Mest lesið Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Viðskipti innlent Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Atvinnulíf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Sjá meira