Umræður í lokuðum hópum fyrir þolendur einkennist oft af reiði og máttleysi þeirra sem hafa engin völd Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 21. október 2018 19:44 Anna Bentína Hermansen, kynjafræðingur og ráðgjafi hjá Stígamótum, sendir Jóni Steinari fyrrverandi hæstaréttardómara opið bréf.
Anna Bentína Hermansen, kynjafræðingur og starfskona hjá Stígamótum, grasrótarsamtökum sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fyrir þolendur kynferðisofbeldis, ákvað að taka áskorun Jóns Steinars Gunnlaugssonar, lögfræðings og fyrrverandi hæstaréttardómara, sem óskaði eftir því að eiga samtal við fólk sem hefur út á verk hans að setja. Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu eftir að Jón Steinar skrifaði grein í Morgunblaðið þar sem hann gerði gróf ummæli í sinn garð að umfjöllunarefni. Hann sagði að í Facebook hópnum „Karlar gera merkilega hluti“ hafi hann verið kallaður „viðbjóður“, „ógeð“ og „illfylgiskarlagerpi“ svo eitthvað sé nefnt. Anna Bentína tekur fram að hún hafi ekki tekið þátt í umræðunum þar sem ofangreind ummæli voru látin falla. Nokkrir meðlimir hópsins sem tóku til máls með þessum hætti lýstu yfir óánægju sinni með ummæli sem Jón Steinar lét falla í viðtali á Eyjunni þar sem hann segir að Robert Downey, sem hlaut dóm fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstúlkum, ætti skilið fyrirgefningu. „Ég fullyrði það að þeim sem brotið er gegn, þeim myndi líða mikið betur ef þeim tækist að þróa með sér fyrirgefningu gegn alvarlegu broti – stundum eru brot miklu alvarlegri en þetta jafnvel allt upp í að svipta menn lífi. Þeir sem geta þróað með sér hugmynd um fyrirgefningu á slíku, þeim líður miklu betur heldur en þeim sem ætla að ganga sinn æviveg uppfullir af hatri gagnvart þeim einstaklingi sem vissulega hefur brotið af sér en afplánað refsingu sína samkvæmt lögum landsins,“ sagði Jón Steinar.Jón Steinar hafi gengið of langt Í opnu bréfi til Jóns Steinars segist Anna Bentína vera sammála honum að hann hafi ekki sætt málefnalegri gagnrýni í lokaða hópnum, enda sé það ekki tilgangur hópsins að vera málefnalegur. „Flestir í þessum hóp hafa brennt sig illa á réttarkerfinu eða þekkja til fólks sem réttarkerfið hefur brugðist. Í þessum umræðum sem fram fóru varstu dreginn til ábyrgðar fyrir að ráðleggja þolendum umbjóðanda þíns að fyrirgefa ofbeldismanni þeirra. Þú varðir umbjóðanda þinn eins og þér bar en þú gekkst lengra með því að biðla þolendur hans um að fyrirgefa honum,“ sagði Anna Bentína í pistlinum. Hún segir að framferði Jóns Steinars í fjölmiðlum um mál Roberts Downeys, hafi strokið mörgum öfugt „sér í lagi brotaþolum og aðstandendum þeirra sem eru í þessum hópi sem viðhöfðu ljótu orðin.“Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður, hefur kallað eftir því að fá að ræða við fólk sem hafi eitthvað út á störf hans að setja.Fréttablaðið/ErnirLokaðir hópar farvegur fyrir óréttlætið Anna Bentína, sem hefur frá árinu 2011 starfað náið með þolendum kynferðisofbeldis í starfi sínu hjá Stígamótum, segir að eðli kynferðisofbeldis sé þannig að sá sem fyrir því verði missi alla stjórn. „Sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins og möguleiki hans að ráða og stjórna aðstæðum er tekinn af honum. Þegar brotaþoli ákveður að kæra, mætir hann sömu aðstæðum. Hann hefur enga lögsögu í málinu, hann verður vitni í eigin máli og hefur nákvæmlega ekkert um það að segja,“ sagði Anna. Hún segir að í kjölfar #MeToo byltingarinnar hafi myndast lokaðir hópar á Facebook fyrir brotaþola og aðstandendur þar sem reynt er að skapa aðstæður sem eru öruggar fyrir þá. Í hópunum fari fram umræða sem einkennist oft af reiði og máttleysi þess sem hafi engin völd og hefur orðið fyrir barðinu á „ónothæfu einnota réttarkerfi sem ver ekki samfélagsþegna sína fyrir brotum sem á þeim eru framin.“ Það sé í lokuðum hópum á borð við „Karlar gera merkilega hluti“ sem þolendur fá farveg fyrir það óréttlæti sem þeir hafa orðið fyrir. Máttleysisleg tilraun hins valdalausa „Þarna getur það sagt Helvítis fokking fokk og beint reiði sinni að óréttlætinu sem það hefur orðið fyrir og það gerir það í krafti þeirrar sannfæringar að einhver hlusti og einhverjum standi ekki á sama. Það er gott að nú hafi þessir einstaklingar fengið athygli. Þó athyglin sé ekki jákvæð og allar þær málefnalegu umræður sem brotaþolar og aðstandendur þeirra hafa sett fram í bókum, pistlum og umræðum, séu máttleysisleg tilraun hins valdalausa að hafa einhver áhrif á réttarkerfi og viðhorf fólks til kynferðisbrota sem er í helvítis fokki,“ sagði Anna. Í opna bréfinu skrifar Anna um sína reynslu af því að hafa verið beitt kynferðisofbeldi og máttleysið sem hún upplifði í baráttu sinni við íslenskt réttarkerfi. Þegar kæran var felld niður – án þess að hafa náð á dómsstig – hafi henni liðið eins og hún hafi orðið fyrir annarri nauðgun. Hugsaði „Helvítis fokking fokk“ þegar Jón Steinar skilaði séráliti „Þar missti ég alla trú á samfélaginu sem ég taldi vera öruggt. Ég trúði því að hér væru lög sem vernduðu þegna samfélagsins. Í innilokun minni næstu árin þar sem ég var óvinnufær og gat ekki tekið þátt í samfélaginu sökum kvíða og þunglyndis, varð ég mjög upptekin af dómum í kynferðisbrotamálum og þá kom nafnið þitt [Jón Steinar Gunnlaugsson] oft fyrir í séráliti sem þú skilaðir sem Hæstaréttardómari. Iðulega fórstu þar fram á sýknu þar sem þér fannst saksóknari ekki hafa sannað sekt ákærða. Jafnvel þótt játning hins ákærða lægi fyrir. Þú gerðir lítið úr greiningu á áfallastreitu og sagðir hana vafasamt gagn til að meta minningar brotaþola,“ lýsti Anna í bréfinu. „Ég segi þér alveg eins og er að ég hugsaði oft Helvítis fokking fokk, þegar nafn þitt kom upp,“ sagði Anna. Í samtali við Vísi sagði Anna að Jón Steinar hefði sagt sér að hann hygðist svara bréfi hennar.Hér að neðan er hægt að lesa opið bréf Önnu Bentínu í heild sinni:
MeToo Tengdar fréttir Fyrirgefningin Fyrir helgina var birt grein eftir mig þar sem ég greindi frá sóðalegri orðræðu á "lokuðu svæði“ á fasbókinni þar sem ausið er illyrðum og óhróðri yfir nafngreinda einstaklinga. 21. október 2018 12:45 Jón Steinar vill fyrirgefa Sóleyju, Sæunni og Hildi Lögmaðurinn býðst til að verja Hildi komi til þess að hún verði rekin. 21. október 2018 13:00 Stjórnendur Facebook-hópsins umdeilda leggja til að Jón Steinar prófi sitt eigið meðal Stjórnendur Facebook-hópsins "Karlar gera merkilega hluti“ segja að hópurinn sé mikilvægur og valdeflandi vettvangur en tilvist hans verði hvorki útskýrð né rökrædd við mann sem skrifi feðraveldi innan gæsalappa og skilji ekki hvað "öruggt svæði er.“ 20. október 2018 09:56 Segir kröfuna um fyrirgefningu aldrei jafn sterka og í kynferðisbrotamálum Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu svarar Jóni Steinari Gunnlaugssyni, lögmanni, fullum hálsi. 20. október 2018 18:35 Kallaður viðbjóður, ógeð og illfygliskarlagerpi sem þurfi að fokka sér Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari segir hrollvekjandi að líta inn í hugarheim þeirra sem tjá sig um hann í hópnum "Karlar gera merkilega hluti“ á Facebook. 19. október 2018 07:15 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira
Fyrirgefningin Fyrir helgina var birt grein eftir mig þar sem ég greindi frá sóðalegri orðræðu á "lokuðu svæði“ á fasbókinni þar sem ausið er illyrðum og óhróðri yfir nafngreinda einstaklinga. 21. október 2018 12:45
Jón Steinar vill fyrirgefa Sóleyju, Sæunni og Hildi Lögmaðurinn býðst til að verja Hildi komi til þess að hún verði rekin. 21. október 2018 13:00
Stjórnendur Facebook-hópsins umdeilda leggja til að Jón Steinar prófi sitt eigið meðal Stjórnendur Facebook-hópsins "Karlar gera merkilega hluti“ segja að hópurinn sé mikilvægur og valdeflandi vettvangur en tilvist hans verði hvorki útskýrð né rökrædd við mann sem skrifi feðraveldi innan gæsalappa og skilji ekki hvað "öruggt svæði er.“ 20. október 2018 09:56
Segir kröfuna um fyrirgefningu aldrei jafn sterka og í kynferðisbrotamálum Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu svarar Jóni Steinari Gunnlaugssyni, lögmanni, fullum hálsi. 20. október 2018 18:35
Kallaður viðbjóður, ógeð og illfygliskarlagerpi sem þurfi að fokka sér Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari segir hrollvekjandi að líta inn í hugarheim þeirra sem tjá sig um hann í hópnum "Karlar gera merkilega hluti“ á Facebook. 19. október 2018 07:15