Dómari hljóp uppi strokufanga Samúel Karl Ólason skrifar 24. október 2018 23:21 Buzzard á hælunum á öðrum fanganum.
Dómari í Washington ríki í Bandaríkjunum þurfti að kasta af sér kuflinum á dögunum og hlaupa á eftir tveimur föngum sem reyndu að stinga af úr dómsal. Þrátt fyrir að fangarnir tveir voru báðir í handjárnum komust þeir þó skringilega langt. Dómarinn R. W. Buzzard náði þó öðrum þeirra í þann mund sem hann var að hlaupa út úr dómshúsinu. Atvikið náðist á myndband en hinn fanginn var gómaður skammt frá. Báðir fangarnir hafa verið ákærðir fyrir flóttatilraunina. Í samtali við fjölmiðla sagðist dómarinn ekki hafa vitað í fyrstu hvað hann ætti að gera þegar mennirnir reyndu að hlaupa á brott. Hann sagðist hafa öskrað á mennina og beðið þá um að stoppa. Þeir væru einungis að gera eigin stöðu verri með flóttatilrauninni.Það var ekki að ástæðulausu að Buzzard byrjaði á því að kasta af sér kuflinum, áður en hann hljóp af stað. Í apríl þurfti hann að stöðva mann sem réðst á lögmann í dómsal. „Ég komst að því þá að það er ekki auðvelt að takast á við annan mann í kuflinum. Ég gat ekki ímyndað mér hvernig ég gæti hlaupið á eftir þeim í kuflinum,“ sagði Buzzard. Dómarinn sagði einnig að til stæði að auka öryggi í dómsölum sýslunnar. Hins vegar hefði það gengið illa vegna fjárskorts.
Bandaríkin Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira