23. september er dagur sem Gunnleifi er ekki ætlað að spila á Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2018 11:30 Gunnleifur Gunnleifsson er fyrirliði og markvörður Breiðabliks. vísir/bára
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður og fyrirliði Blika verður ekki með liðinu um helgina þegar Breiðablik mætir Fjölni í 21. umferð Pepsideildar karla í fótbolta og missir þar af sínum fyrsta leik síðan 2012. Gunnleifur fékk rautt spjald í leik Fylkis og Breiðabliks í gær og verður því í leikbanni á móti Fjölni. Hann fékk rauða spjaldið í uppbótartíma leiksins fyrir að brjóta á Fylkismanninum Ragnari Braga Sveinssyni sem var sloppinn í gegn. Gunnleifur hefur spilað alla 130 leiki í boði síðan að hann gekk til liðs við Blika fyrir 2013 tímabilið. Að auki spilaði hann lokaleik FH á 2012 tímabilinu. Síðasti leikurinn sem Gunnleifur missti af var á móti ÍBV 23. september 2012 en Róbert Örn Óskarsson var þá í marki FH. Leikurinn um helgina fer líka fram 23. september en bara 2191 degi síðar. Gunnleifur missri nú af öðru tækifæri að spila leik 23. september en það er greinilega dagur sem Gunnleifi er ekki ætlað að spila á. Þetta var fyrsta rauða spjald Gunnleifs í Pepsideildinni síðan að hann fékk rautt spjald í leik á móti Stjörnunni 27. júní 2010. Gunnleifur var þá markvörður FH. Gunnleifur var kominn upp í fimmta sæti yfir þá sem hafa spilað flesta leiki í röð í efstu deild með því að spila 131 leik í röð. Upplýsingar um þennan topplista má finna í Íslenskri knattspyrnu 2017 en met Birkis Kristinssonar er 198 leikir í röð. Gunnleifi vantaði sex leiki í viðbót til að ná Daða Lárussyni í fjórða sætinu. Hér fyrir neðan má sjá rauða spjaldið hans Gunnleifs Gunnleifssonar á Fylkisvellinum í gærkvöldi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira