Kveður sauðfjárbændur og skellir sér til Ítalíu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. september 2018 16:48 Svavar Halldórsson hlakkar til að flytja utan til Ítalíu og hefja nám.
Svavar Halldórsson lætur brátt af störfum sem framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Icelandic lamb og Markaðsráðs kindakjöts. Svavar hyggur á meistaranám á Ítalíu til eins árs og verður því í fjarri fjölskyldu um tíma. Hún mun þó fara utan til Svavars með vorinu. Hann hlakkar mjög til að setjast á skólabekk. Starf framkvæmdastjóra Icelandic lamb hefur verið auglýst laust til umsóknar. Svavar var staddur í Kaupmannahöfn með dætrum sínum þegar blaðamaður náði af honum tali. Hann segir hafa verið kominn tíma á breytingar eftir þrjú og hálft ár í starfinu. Þegar maður hættir að spretta upp úr rúminu á morgnana þurfi að horfa víðar. Svavar hyggur á nám í stjórnun og markaðssetningu við University of Gastonomic Sciences í Pollenzo. Allajafna nemur fjöldi umsækjanda fleiri hundruðum en aðeins tuttugu komust inn. Því hafi ekkert annað komið til greina en að skella sér í námið sem hefst eftir áramót. Svo skemmtilega vill til að Svavar er ekki sá eini sem hyggur á nám á erlendri grundu. Dætur Svavars horfa einnig út fyrir landsteinanna. Ein þeirra er nýstúdent og komin í ársnám í Englandi. Næstu tvær fara að ljúka menntaskólanámi og eru þær með Svavari í Kaupmannahöfn þessa stundina að skoða háskóla. Það sannast að háskólanám er fyrir fólk á öllum aldri. „Ég hlakka ótrúlega til.“Svavar ásamt konu sinni Þóru um árið á Eddunni.Krefjandi en gefandi verkefni Svavar segir starf sitt fyrir íslenska sauðfjárbændur hafa verið risaverkefni. Hann rekur síðustu þrjú og hálft ár í pistli sem hann birti á Facebook skömmu eftir að blaðamaður ræddi við hann. „Annars vegar að finna leiðir til að segja erlendum ferðamönnum frá íslenska lambinu og fá þá til að kaupa meira af afurðunum - enda hafði innanlandssalan á þjóðarréttinum lambakjöti dregist saman um 12% frá 2008 til 2014, á meðan ferðamönnum fjölgaði gríðarlega. Hins vegar fólst verkefnið í að leita nýrra leiða í útflutningi inn á velborgandi og kröfuharða markaði í útlöndum,“ segir Svavar. Framvindan hafi verið hröð. „Eftir mikla stefnumótunarvinnu var ákveðið að stofna markaðsstofuna Icelandic Lamb. Að þeirri ákvörðun stóðu framsýnir bændaforingjar og stjórnmálamenn. Nú er markaðsstofan með um 200 samstarfssamninga við veitingamenn, kokka, hönnuði, framleiðendur og handverksfólk um allt land. Samkvæmt könnunum Gallup þekkir þriðjungur ferðamanna merki Icelandic Lamb sem prýðir nú um 165 veitingastaði. Innanlandssalan á lambakjöti jókst um 8% frá 2015 til 2017 og ekkert bendir til annars en sú þróun muni halda áfram. Aukin sala til erlendra ferðamanna er helsti drifkraftur þessa viðsnúnings,“ segir Svavar. „Á sama tíma hefur verið unnið ötullega að ýmsum markaðssetningarverkefnum í útlöndum. Þótt ytri áföll hafi dunið yfir og sterk króna hafi gert útflutning erfiðan hefur aldrei verið flutt út jafn mikið af íslensku lambakjöti og í fyrra. Góður árangur hefur náðst í Japan þar sem lambakjötið er á matseðlum rúmlega 100 veitingastaða og nýtt verkefni í Þýskalandi lofar góðu. Þá eru Austurríki og Frakkland innan seilingar og viðræður við tvö fyrirtæki um að selja íslenskt lambakjöt inn á efstu hillu kínverska markaðarins. Þetta eru samvinnuverkefni innlendra framleiðenda, erlendra samstarfsaðila og markaðsstofunnar Icelandic Lamb. Ýmislegt fleira er í pípunum en nú er búið að móta ramma sem hægt er að byggja á til framtíðar.“Sinnir áfram trúnaðarstörfum Svavar segir öfluga herferð á samfélagsmiðlum hafa skilað miklum árangri og milljónir manna séð um 60 myndbönd og aðrar auglýsingar Icelandic Lamb. „Óhætt er að fullyrða að aldrei hafa fleiri heyrt um íslenska lambið á jafn stuttum tíma og síðustu tvö ár. Nú er búið að byggja upp öflugan gagnabanka og þekkingu á markaðssetningu íslenskra sauðfjárafurða á netinu sem mun nýtast þegar næstu 50 myndbönd og auglýsingar koma út úr framleiðsluferlinu á næstu vikum og mánuðum.“ Verkefnin hafi verið krefjandi en gefandi „Sjálfur hef ég kynnst fjöldanum öllum af frábæru fólki; bændum og starfsmönnum þeirra, kjötkaupmönnum, auglýsingafólki og fleirum og fleirum. Þar hefur myndast góð vinátta sem mun vara út ævina.“ Svavar segist þó áfram munu gegna ákveðnum trúnaðarstörfum fyrir sauðfjárbændur og leið tiltekið nýsköpunarverkefni sem muni vonandi gagnast íslenskum bændum í framtíðinni. „Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að koma markaðsstofunni Icelandic Lamb á legg en nú held ég að hún geti staðið á eigin fótum. Það fylgir því vissulega söknuður að kveðja verkefni sem ég hef verið vakinn og sofinn yfir í mörg ár en ég ber fullt traust til samstarfsmanna minna sem munu halda kyndlinum á lofti. Ég er reiðubúinn að taka næsta skref framávið og reikna með því að eiga dásamlegt ár á Ítalíu. Að náminu loknu verð ég svo vonandi enn betur í stakk búinn til að vinna fyrir Ísland, íslenskan mat og íslenska bændur.“
Vistaskipti Mest lesið Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Viðskipti innlent Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Viðskipti innlent Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Viðskipti innlent Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Viðskipti innlent Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Viðskipti innlent Hótar Evrópusambandinu og Apple háum tollum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Ráðinn markaðsstjóri Bónuss Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili „Ég held að þú þurfir ný gleraugu“ Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara Sjá meira