Gulli Gull ætlar alls ekki að hætta: Fótbolti og fjölskyldan er líf mitt Þór Símon skrifar 29. september 2018 17:29 Gulli er ekkert að fara hætta. vísir/bára „
Fyrstu viðbrögð eru auðvitað að óska Val til hamingju með titilinn. Besta lið landsins og verðskuldað meistarar,“ sagði kátur Gunnleifur Gunnleifsson, eða Gulli Gull, markmaður Breiðabliks eftir 4-0 sigur liðsins á KA í lokaumferð Pepsi deildarinnar. „Það eru alltaf margar tilfinningar í gangi eftir lokaleik sumarsins. Við erum mjög sáttir með tímabilið. Vorum nálægt þessu í báðum keppnum og getum verið stoltir af okkur,“ sagði Gulli en Breiðablik nældi í silfrið bæði í deild og bikar. En ætlar Gulli að halda áfram að standa á milli stangana næsta sumar? „Það er planið,“ sagði Gulli hlægjandi en hann varð 43 ára núna í júlí og hækkar meðalaldur deildarinnar vægast sagt. En er þá ekki kominn tími til að hætta þessu bara? „Veistu hvað þetta er gaman? Þetta er líf mitt. Fótbolti og fjölskyldan. Ég elska þetta og mun halda áfram eins lengi og ég get,“ sagði Gulli en þrátt fyrir háan aldur er hann að margra mati besti markvörður deildarinnar. Á dögunum missti hann af sínum fyrsta leik síðan 2012 í Pepsi deildinni vegna leikbanns. Ætlar hann þá að spila til fimmtugs til að ná upp slíkri röð leikja aftur? „Ég er ennþá að pirra mig á því [að missa út leik]. Fyrir rautt spjald líka. Við þurfum að sjá til en byrjum bara á næsta sumri,“ sagði hin síungi Gulli.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Gunnar Nelson með augun á bardaga í ár Sport „Sorgmæddur en stoltur“ Fótbolti Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Fótbolti Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Körfubolti Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Handbolti Fleiri fréttir Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Sjá meira