Lögreglan lýsir eftir manni í tengslum við árásir í Garðabæ Samúel Karl Ólason skrifar 29. ágúst 2018 18:27 Garðabær. Fréttablaðið/Sigurjón
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar mannsins á meðfylgjandi mynd vegna rannsóknar á málum sem snúa að árásum á börn í Garðabæ. Ráðist var á tvær ungar stúlkur í Garðabæ í gær og eru nú fimm sambærileg tilvik til rannsóknar. Að sögn lögreglu er málið í algjörum forgangi og unnið er út frá því að sami maður sé að verki. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglunnar hvort umræddur maður liggi undir grun. Lögreglan biður manninn, eða þá sem þekkja hann, að hafa strax samband við lögreglu gegnum símann 444-1000, netfangið abendingar@lrh.is eða einkaskilaboð á fésbókarsíðu embættisins. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því í gærkvöldi að hún hefði til rannsóknar tvö ný tilvik þar sem ráðist var á stúlkur á gangi í Garðabæ. Eru því alls fimm sambærilegar árásir til rannsóknar hjá lögreglu.Sjá einnig: Stúlkan dregin á bak við hól á leikvelli Nýjustu atvikin áttu sér stað á milli klukkan fjögur og sex, síðdegis í gær og var þetta á svipuðum stað og þar sem ráðist var á stúlku á fimmtudag, en það var á göngustíg við Arnarnesmýri, meðfram Gullakri og Góðakri. Allar stúlkurnar sem veist hefur verið að eru á svipuðum aldri, eða um átta til tíu ára gamlar. Samkvæmt heimildum fréttastofu átti önnur árásin í gær sér stað á leikvelli milli Holtsbúðar og Reykjanesbrautar. Árásarmaðurinn hafi verið á unglingsaldri, klæddur grárri hettupeysu, svörtum gallabuxum og svörtum strigaskóm. Stúlkan hafi verið að leik með vinkonu sinni þegar maðurinn greip hana og dró á bak við hól á leikvellinum. Þegar stúlkan öskraði sleppti hann takinu.Lögregla fór fram á það við fjölmiðla að mynd af manninum sem leitað var yrði fjarlægð eftir að í ljós kom að um barn væri að ræða. Fréttastofa hefur orðið við þeirri ósk og því hefur verið skipt um mynd hér að ofan.
Tengdar fréttir Vilja ná tali af tveimur manneskjum vegna rannsóknar á árás á stúlku í Garðabæ Nokkrar ábendingar hafa borist. 28. ágúst 2018 16:41 Auka eftirlit í Garðabæ vegna árása Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að auka eftirlit í Garðabæ vegna tveggja atvika þar sem tilkynnt var um að veist hafi verið að stúlkum í Garðabæ í dag. 28. ágúst 2018 22:52 Foreldrum í nágrenni árásanna bent á að gera viðeigandi ráðstafanir Þetta kemur fram í tilkynningu frá Garðabæ. 29. ágúst 2018 14:43 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira
Vilja ná tali af tveimur manneskjum vegna rannsóknar á árás á stúlku í Garðabæ Nokkrar ábendingar hafa borist. 28. ágúst 2018 16:41
Auka eftirlit í Garðabæ vegna árása Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að auka eftirlit í Garðabæ vegna tveggja atvika þar sem tilkynnt var um að veist hafi verið að stúlkum í Garðabæ í dag. 28. ágúst 2018 22:52
Foreldrum í nágrenni árásanna bent á að gera viðeigandi ráðstafanir Þetta kemur fram í tilkynningu frá Garðabæ. 29. ágúst 2018 14:43