Sara er hugrakkasti íþróttamaðurinn sem ég hef unnið með Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2018 09:00 Ragnheiður Sara Sigmundsdóttur. Mynd/Instagram síða Söru
Phil Mansfield, nýr þjálfari íslensku crossfitstjörnunnar Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur, talar ekki vel um þær kringumstæður sem Sara hafur verið í undanfarin ár og ekki fá gömlu þjálfararnir hennar heldur góða einkunn hjá honum. Ragnheiður Sara er eina íslenska crossfitkonan sem hefur verið meðal fjögurra efstu á undanförnum þremur heimsleikum en hún varð þriðja 2015 og 2016 og svo fjórða í fyrra. Phil Mansfield er í viðtali hjá REDPILL Training á Youtube þar sem hann ræðir nýtt starf sitt sem þjálfari Ragnheiðar Söru sem og þá skoðun margra að hún hafi ekki verið nógu andlega sterk til að komast ofar á síðustu leikum. Phil Mansfield segir að fyrst á dagskrá hafi verið að gera Söru að atvinnuíþróttamanni. „Hún var kannski íþróttamaður í fullu starfi áður en hún var ekki atvinnuíþróttamaður. Hún hefur gengið í gegnum erfiða lífsreynslu og margir hafa brugðist henni. Fyrst á dagskrá var því að búa til traust innan hópsins hennar,“ sagði Phil Mansfield. Mansfield segir að Sara hafi þurft að taka til allsstaðar hjá sér, bæði andlega, líkamlega og í því sem hún lætur ofan í sig. „Þetta er hennar vinna og hún hefur 45-50 tíma á viku til að einbeita sér að því að verða eins góð og hún getur orðið. Okkur hefur tekist það í ár og það var aðalmarkmiðið,“ sagði Mansfield. „Markmiðið er ekki að vinna þessa heimsleika heldur að vera í sérflokki í crossfit-heiminum næstu fimm árin. Ef við ætlum að ná því þá verðum við að taka eitt skref í einu,“ sagði Mansfield. Mansfield er síðan spurður út í andlegu hliðina hjá Söru og það að þar liggi hennar veikleiki. Hann er alls ekki sammála því. „Það er auðvelt fyrir alla að horfa á hana og dæma án þess að þekkja allar staðreyndir. Ef fólk vissi bara hvað Sara hefur þurft að ganga í gegnum á síðustu árum, kringumstæðurnar og umhverfið,“ sagði Mansfield og segir að Sara hafi sjálf viðurkennt að eiga þar hlut að máli með þeim slæmu ákvörðunum sem hún hefur tekið. „Ef fólk áttaði sig á því hvað hún hefur afrekað þrátt fyrir þetta þá myndi það örugglega kalla hana sterka stelpu. Það er ekkert að andlega hlutanum hjá Söru og þar eru engir veikleikar. Hún hefur afrekað miklu meiri en flestir hefði í þessum aðstæðum vegna mjög, mjög slæmra ákvarðanna bæði hjá henni og liðinu í kringum hana,“ sagði Mansfield. „Sara er hugrakkasti íþróttamaðurinn sem ég hef unnið með og þetta er ekki stelpa þar sem vantar eitthvað á milli eyrnanna. Þetta er ótrúlega sterk stelpa sem lenti bara í mjög slæmum aðstæðum. Vonandi getum við búið til umhverfi fyrir hana þar sem hún fær að njóta sín.,“ sagði Phil Mansfield en það má sjá allt viðtalið hér fyrir neðan.
CrossFit Tengdar fréttir Þetta er nýjasta íslenska dóttirin á heimsleikunum í crossfit Við þekkjum öll Anníe Mist, Katrínu Tönju og Ragnheiði Söru sem hafa keppt á mörgum heimsleikum í crossfit en í ár er íslensk crossfit kona að stíga sín fyrstu skref á leikunum. 31. júlí 2018 13:00 Allar íslensku stelpurnar geta barist um eitt af toppsætunum Ísland á fimm fulltrúa á heimsleikunum í CrossFit sem hefjast í Bandaríkjunum í dag. Lokaæfing dagsins er að taka heilt maraþon í róðrarvélinni sem hljómar hrikalega að mati fyrrverandi heimsleikafara. 1. ágúst 2018 06:00 Segir þau hafa gert mikil mistök með því að ná Katrínu Tönju heilli á heimsleikana Í ár hefur hún æft eins stíft og hún þolir á hverjum degi og segist vera sífellt með verki en elskar það. 31. júlí 2018 10:45 Fjórða greinin á morgun verður sú lengsta í sögu heimsleikanna í krossfit Keppendurnir á heimsleikunum í krossfit fengu hverja tilkynninguna á fætur annarri í gær þegar hæstráðandi heimsleikanna, Dave Castro, var duglegur að hitta á hópinn og segja frá greinunum í komandi í keppni. 31. júlí 2018 09:00 Þuríður Erla um íslensku stelpurnar: „Þær geta allar unnið“ Þuríður Erla Helgadóttir hefur farið sex sinnum á heimsleikana í Crossfit en komst ekki inn í ár. Hún hefur trú á íslensku stelpunum sem eru meðal keppenda en þær eru fjórar talsins. 31. júlí 2018 19:45 Meira en þrjátíu milljónir í boði fyrir þann sem vinnur heimsleikana í ár Verðlaunaféð hækkar á milli ára á heimsleikunum í crossfit og keppendur fá bæði væna summu fyrir að vinna leikana sem og ágætis pening fyrir að vinna hverja grein í keppninni. 31. júlí 2018 12:00 Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Dagskráin: Oddaleikur í körfunni en Albert og félagar þurfa lítið kraftaverk Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Völdu kærustu hennar líka númer eitt Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni „Þetta var skandall“ Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ Sjá meira
Þetta er nýjasta íslenska dóttirin á heimsleikunum í crossfit Við þekkjum öll Anníe Mist, Katrínu Tönju og Ragnheiði Söru sem hafa keppt á mörgum heimsleikum í crossfit en í ár er íslensk crossfit kona að stíga sín fyrstu skref á leikunum. 31. júlí 2018 13:00
Allar íslensku stelpurnar geta barist um eitt af toppsætunum Ísland á fimm fulltrúa á heimsleikunum í CrossFit sem hefjast í Bandaríkjunum í dag. Lokaæfing dagsins er að taka heilt maraþon í róðrarvélinni sem hljómar hrikalega að mati fyrrverandi heimsleikafara. 1. ágúst 2018 06:00
Segir þau hafa gert mikil mistök með því að ná Katrínu Tönju heilli á heimsleikana Í ár hefur hún æft eins stíft og hún þolir á hverjum degi og segist vera sífellt með verki en elskar það. 31. júlí 2018 10:45
Fjórða greinin á morgun verður sú lengsta í sögu heimsleikanna í krossfit Keppendurnir á heimsleikunum í krossfit fengu hverja tilkynninguna á fætur annarri í gær þegar hæstráðandi heimsleikanna, Dave Castro, var duglegur að hitta á hópinn og segja frá greinunum í komandi í keppni. 31. júlí 2018 09:00
Þuríður Erla um íslensku stelpurnar: „Þær geta allar unnið“ Þuríður Erla Helgadóttir hefur farið sex sinnum á heimsleikana í Crossfit en komst ekki inn í ár. Hún hefur trú á íslensku stelpunum sem eru meðal keppenda en þær eru fjórar talsins. 31. júlí 2018 19:45
Meira en þrjátíu milljónir í boði fyrir þann sem vinnur heimsleikana í ár Verðlaunaféð hækkar á milli ára á heimsleikunum í crossfit og keppendur fá bæði væna summu fyrir að vinna leikana sem og ágætis pening fyrir að vinna hverja grein í keppninni. 31. júlí 2018 12:00