Rýmdu hótel í Rostov vegna sprengjuhótunar Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2018 22:42 Frá Rostov við Don þar sem leikið er á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Vísir/EPA
Lögreglan í borginni Rostov við Don í Rússlandi þar sem íslenska landsliðið keppti við Króatíu fyrr í kvöld rýmdi hótel vegna sprengjuhótunar. Hótelið er á lista alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA yfir opinber hótel heimsmeistaramótsins en ekkert landslið gistir þó á því.Reuters-fréttastofan segir að sést hafi til lögregluhunda fara inn í Topos Congress-hótelið í Rostov við Don í kvöld í leit að mögulegri sprengju. Öryggissveitir hafi rætt við vitni fyrir utan hótelið. Um sextíu gestir hafi staðið fyrir utan hótelið á meðan. Að sögn hótelstarfsmanna gista um 210 manns þar. Samkvæmt heimildum Vísis gistir einhver fjöldi Íslendinga á hótelinu. Rostov við Don er aðeins 67 kílómetra frá landamærum Rússlands að austurhluta Úkraínu þar sem rússnesk stjórnvöld hafa lagt uppreisnarmönnum lið í blóðugum átökum undanfarin ár. Næst verður leikið í borginni á heimsmeistaramótinu á mánudag.Uppfært 23:20 Lögreglan í Rostov við Don segir við Reuters að hún hafi rýmt sextán staði í borginni í kvöld, þar á meðal hótel og veitingastaði, og að það hafi verið liður í æfingu. Áður hafði lögregla sagt Reuters að Topos Congress-hótelið hefði verið rýmt vegna gruns um sprenguhótun.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira