Stoltasti pabbi í heimi brast í grát þegar Hannes varði vítið frá Messi Kolbeinn Tumi Daðason í Kabardinka skrifar 18. júní 2018 10:00 Halldór Þórarinsson gat ekki haldið aftur af tárunum í leikslok á Spartak-leikvanginum á laugardag. Vísir/Vilhelm
Þegar Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu argentínska snillingsins Lionel Messi brast 56 ára karlmaður í grát í stuðningshópi Íslands. Halldór Þórarinsson, matvælafræðingur og faðir Hannesar, hefur stutt son sinn í gegnum súrt og sætt. Hann var að sjálfsögðu mættur til Moskvu á laugardaginn. „Ég er þannig að ég er alveg skítstressaður á leikdegi. Það versnar bara eftir því sem nær dregur og ég er alveg farinn meðan á leik stendur,“ segir Halldór. Annars sé hann nú rólyndis maður. „Ég held það allavega,“ segir hann léttur.Feðgarnir eftir 2-1 sigurinn á Englandi í Nice.Vísir/VilhelmNálægt spyrnu Rooney í Nice Hann segist í raun ekki geta lýst því hvar hann var á meðan á leiknum stóð. „Ég veit ekki hvar ég var,“ segir Halldór. Eftir 1-1 stöðu í hálfleik dæmdi pólski dómarinn umdeilda vítaspyrnu á Ísland. Hvert einasta mannsbarn vissi hver myndi stíga á punktinn. Argentínski töframaðurinn Lionel Messi sem á bara eitt eftir á glæstum ferli. Að vinna HM. „Ég hugsaði hann tekur þetta,“ segir Halldór. Hann rifjar upp vítaspyrnuna sem Wayne Rooney skoraði úr í 2-1 sigri Íslands á Englendingum í Nice í sextán liða úrslitunum á EM 2016. „Hann var svo nálægt því að verja frá Rooney á sínum tíma.“Sturluð tölfræði Segja má að vítaspyrnuvörslur séu ær og kýr Hannesar. Hann hefur spreytt sig á 24 samanlagt í deildarleikjum og landsleikjum. Aðeins 15 hafa farið inn. Ótrúleg tölfræði. „Ég var alveg viss um að hann tæki þetta, sem var líka mjög gott því ég var búinn að spá 1-1.“ Úti um allan heim trylltist fólk af fögnuði. Davíð sigraði Golíat í enn eitt skiptið. Kvikmyndaleikstjóri frá Íslandi hafði betur gegn jafnbesta knattspyrnumanni heims. „Ég fór nú bara að grenja þegar hann varði vítið. Ég fór alveg,“ segir Halldór. Skal engan undra. Hvernig bregst maður við þegar manns nánasti sigrar að því virðist heiminn? Spyr sá sem ekki veit.Sjálfur sagði Hannes í viðtali við Vísi eftir leik að hann hefði fengið eina eftirminnilegustu stund sína upp í hendurnar.Halldór að loknum miklum tilfinningarússíbana. Með honum er Baldur Kristjánsson, vinur Hannesar, sem var að sjálfsögðu klæddur í gallann frá A-Ö.Vísir/VilhelmEltur á röndum á flandri Halldór var nýlentur heima á Íslandi í gær þegar blaðamaður náði af honum tali. Ferðin til Moskvu var stutt en eftirminnileg. Hann hélt utan aðfaranótt laugardags. „Ég var bara einn á flandri en var reyndar eltur af rússneskri sjónvarpsstöð allan tímann,“ segir Halldór. Sjónvarpsstöðin er að vinna þátt um þrjátíu áhorfendur hvaðan æva úr heiminum, þar á meðal ÍslandiÞað var víst ég. Það var bara fínt. Það dreifði huganum, segir Halldór og vísar til stressins á leikdegi. Raunar var sólarhringurinn svo til svefnlaus. Flogið utan að nóttu til, allt á fullu á leikdegi og svo lítið sofið nóttina eftir leik áður en haldið var aftur heim á klakann. „Maður sefur bara seinna,“ segir Halldór.Hannes Þór Halldórsson, þá markvörður Fram, var valinn í íslenska landsliðið í fyrsta skipti árið 2009.Fréttablaðið/Valgarður GíslasonFurðulegt ferðalag Saga Hannesar er einstök. Markvörður sem fáir ættu von á að yrði einhvern tímann talinn nógu góður til að spila fyrir Chelsea eða Manchester United. Eitthvað sem markvarðarþjálfari Íslands, Guðmundur Hreiðarsson, telur hann vel geta gert. Honum var hafnað af neðri deildarliði, gerði afdrifarík mistök þegar hann fékk tækifæri í marki Leiknis árið 2004 og sæti í 1. deild í húfi, spyrnugeta hans þótti ekki nógu góð. Svo tóku við skýr markmið, sem Hannes hefur oft talað um. Spila í efstu deild, spila fyrir landsliðið, fara í atvinnumennsku og þannig mætti halda áfram. Í dag spilar hann með Randers í Danmörku en ljóst er að markvarðarþjálfarar um heim allan þekkja nafnið hans eftir Argentínuleikinn, þekktu þeir það ekki fyrir. Fastlega má búast við því að Randers fái formlegar fyrirspurnir um íslenska markvörðinn sem fyrir utan vítaspyrnuvörsluna átti frábæran dag í marki Íslands gegn hæfileikabúntunum frá Argentínu. En hver er lykillinn að þessum árangri hjá Hannesi?Hannes Þór á leið til föður síns eftir leikinn gegn Argentínu.Vísir/VilhelmInnilegt faðmlag í leikslok „Ég myndi segja að hann er gríðarlega fókuseraður. Þegar hann setur sér markmið þá gerir hann allt sem þarf. Hann er líka maður aukaæfinganna, hann æfir og æfir. Ef það er eitthvað sem vantar þá æfir hann það. Það er þessi elja, dugnaður, einurð og fókus,“ segir Halldór sem fékk að knúsa strákinn í leikslok uppi í stúku. „Hann kom til mín og við náðum aðeins að faðmast. Svo var ekkert meira en ég heyrði í honum í morgun,“ segir Halldór. Hannes sé þakklátur augnablikum sem þessum. Meðan hann hafi áhuga á þessu sé þetta spurning um að hafa gaman, njóta.Stundin sem enginn Íslendingur mun gleyma í náinni framtíð.vísir/VilhelmSannfærður um áframhaldandi velgengni Halldór er kominn heim og verður ekki á leikjunum gegn Nígeríu í Volgograd á föstudaginn og gegn Króatíu í Rostov við Don 26. júní. „Ég missi af næstu tveimur leikjum en næ restinni,“ segir Halldór sem spáði Íslandi upp úr riðlinum og raunar alla leið í úrslitaleikinn í janúar. Þá spáði hann einmitt 1-1 jafntefli gegn Argentínu. Ísland vinnur Nígeríu 2-0 og gerir aftur 1-1 jafntelfi við Króatíu, gangi spáin eftir. „Ég var úti allt Evrópumótið og upplifði ekki stemmninguna heima. Verður maður ekki að prófa það?“ spyr Halldór og stefnir á að horfa á Nígeríuleikinn í Hljómskálagarðinum þangað sem fólk mun vafalítið streyma. Það er því ljóst að Halldór verður mættur út til Nizhny Novgorod, vinni Ísland riðilinn, eða Kazan, hafni liðið í öðru sæti riðilsins. Annað virðist ekki inni í myndinni hjá harðasta stuðningsmanni Hannesar Þórs Halldórssonar.Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.
HM 2018 í Rússlandi Tengdar fréttir Segir Hannes eiga heima hjá liðum eins og Chelsea eða United Hannes Þór Halldórson fékk mikið lof frá kollegum markvarðaþjálfara íslenska landsliðsins. 17. júní 2018 19:15 Hannes: Pressan var öll á Messi enda að skjóta á 34 ára gamlan leikstjóra Hannes Þór Halldórsson fór pressulaus inn í eina af stærstu stundum lífs síns. 17. júní 2018 10:30 „Lítill kubbur“ sem Hannes fékk geymdi leyndarmál Messi á vítapunktinum Hannes Þór Halldórsson var vel undirbúinn og vissi í raun hvert Messi ætlaði að skjóta. 17. júní 2018 11:30 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Sjá meira
Segir Hannes eiga heima hjá liðum eins og Chelsea eða United Hannes Þór Halldórson fékk mikið lof frá kollegum markvarðaþjálfara íslenska landsliðsins. 17. júní 2018 19:15
Hannes: Pressan var öll á Messi enda að skjóta á 34 ára gamlan leikstjóra Hannes Þór Halldórsson fór pressulaus inn í eina af stærstu stundum lífs síns. 17. júní 2018 10:30
„Lítill kubbur“ sem Hannes fékk geymdi leyndarmál Messi á vítapunktinum Hannes Þór Halldórsson var vel undirbúinn og vissi í raun hvert Messi ætlaði að skjóta. 17. júní 2018 11:30