Zidane: Mitt mark var betra Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. apríl 2018 21:30 Ronaldo og Zidane kunna báðir að skora mörk. vísir/getty
Það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum fótboltaáhugamanni að Cristiano Ronaldo skoraði stórbrotið mark í sigri Real Madrid á Juventus í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Ronaldo kom Real yfir snemma leiks en það er annað mark hans sem vakti sanngjarna athygli, stórbrotin bakfallsspyrna úr miðjum markteignum.Sjá einnig: Sjáðu glæsimark Ronaldo og magnaða lýsingu Hödda Magg Real vann leikinn 0-3 og er í frábærri stöðu fyrir seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Knattspyrnustjóri Real, fyrrum stórstjarnan Zinedine Zidane, var þó ekki eins hrifinn og margir aðrir og sagðist hafa skorað betra mark á sínum tíma. Aðspurður í viðtali eftir leikinn hvort markið hafi verið fallegra, mark Ronaldo eða mark hans í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Bayer Leverkusen árið 2002 sagði Zidane: „Markið mitt. Klárlega.“ Hann var þó ánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum. „Það er ekki auðvelt að skora þrjú mörk gegn Juventus á þeirra heimavelli. Við spiluðum frábærlega en Juve spilaði einnig vel og settu pressu á okkur. Þeir fengu færi til að skora mörk en við vorum beinskeyttari.“ „Cristiano Ronaldo er öðruvísi en allir aðrir og hann vill alltaf gera eitthvað stórkostlegt í Meistaradeildinni. Markið hans var frábært en hann misnotaði tvö mun auðveldari færi,“ sagði Zinedine Zidane. Mark Zidane frá 2002 má sjá í myndbandinu hér að neðan.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira