Vilja koma í veg fyrir aftöku „Boys Don´t Cry morðingjans“ Samúel Karl Ólason skrifar 3. apríl 2018 23:10 Peter Sarsgaard, Hilary Swank og Brendan Sexton í hlutverkum Lotter, Teena og Nissen. Vísir/Getty
Lögmenn morðingjans John Lotter segja að ekki megi taka hann af lífi vegna þess hve greindarskertur hann sé. Morð hans urðu kveikjan að myndinni Boys Don‘t Cry sem gefin var út árið 1999 með Hillary Swank í aðalhlutverki. Lotter situr í fangelsi fyrir þrjú morð sem hann framdi árið 1993 og hefur hann beðið aftöku í 22 ár. Hann var dæmdur til dauða í Nebraska fyrir að hafa myrt Brandon Teena, 21 árs transmann, og vitnin Lisu Lambert og Philip DeVine. Hann er 46 ára gamall. Í síðustu viku lögðu lögmenn hans fram kröfu um að fella ætti aftöku hans niður eftir að hann mældist með 67 í greindarvísitölu í fyrra. Samkvæmt frétt AP-fréttaveitunnar samsvarar það greindarvísitölu átta ára gamals barns. Lög Nebraska segja til um greindarvísitala undir 70 sé hægt að leggja fyrir dóm til marks um greindarskerðingu og þá úrskurðaði Hæstiréttur Bandaríkjanna árið 2002 að ekki mætti taka fanga með greindarskerðingu af lífi. Samþykki dómari málflutning lögmanna Lotter munu saksóknarar fá eigin sérfræðing til að greina Lotter. Lotter og Marvin Thomas Nissen nauðguðu Teena eftir að þeir komust að því að hann væri transmaður og myrtu hann. Sömuleiðis myrtu þeir Lampert og DeVine sem urðu vitni að morði Teena. Nissen situr í lífstíðarfangelsi vegna morðanna. Lotter hefur ávalt haldið fram sakleysi sínu. Kvikmyndin Boys Don‘t Cry fjallaði um morðin og vann Swank óskarsverðlaunin fyrir að leika Teena.
Bandaríkin Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira