Ákærður fyrir morðið á Justine Damond Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. mars 2018 13:42 Mohamed Noor. Vísir/AFP
Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa ákært lögreglumanninn Mohamed Noor fyrir að hafa skotið hina áströlsku Justine Damond til bana í bandarísku borginni Minneapolis í fyrra. BBC greinir frá.Sjá einnig: Skotin til bana á náttfötunum eftir að hafa hringt á lögreglu Damond var skotin til bana í júlí síðastliðnum eftir að hafa hringt á neyðarlínuna. Í símtalinu tilkynnti hún um nauðgun sem hún taldi að væri að eiga sér stað í húsasundi nærri heimili hennar. Þegar lögregluþjóna bar að garði skömmu síðar var Damond komin út í húsasundið, íklædd náttfötum. Þar var hún var skotin margsinnis af lögregluþjóninum Mohamed Noor. Noor gaf sig fram við lögreglu og hefur nú verið ákærður fyrir bæði morð og manndráp af gáleysi. Saksóknari Hennepin-sýslu, Mike Freeman, sagði á blaðamannafundi að ekkert hafi gerst á vettvangi sem réttlæti viðbrögð lögreglumannsins. Verði Noor fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsi fyrir morð auk 10 ára fangelsis fyrir manndráp. Málið vakti mikla umræðu og reiði í Ástralíu á sínum tíma en Damond var áströlsk. Forsætisráðherrann Malcolm Turnbull lýsti því sem „óútskýranlegu“ og „hneykslanlegu drápi“.Justine Damond, var 40 ára gömul þegar hún var skotin til bana í Minneapolis í júlí í fyrra.
Bandaríkin Tengdar fréttir Drápið á Justine Damond: Lögreglustjóri í Minnesota segir af sér Lögreglustjóri í Minnesota í Bandaríkjunum hefur sagt af sér eftir að lögreglumaður skaut óvopnaða ástralska konu til bana í úthverfi Minneapolis í síðustu viku. 22. júlí 2017 09:30 Skotin á náttfötunum: Gefur lítið fyrir sögusagnir um umsátur „Hún var augljóslega ekki vopnuð, hún var ekki að ógna neinum.“ 20. júlí 2017 12:48 Neitar að tjá sig eftir að hann skaut konu á náttfötunum Atvikið hefur vakið mikla reiði í Ástralíu og hefur Malcolm Turnbull, forsætisráðherra landsins farið fram á svör. 19. júlí 2017 11:49 Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira
Drápið á Justine Damond: Lögreglustjóri í Minnesota segir af sér Lögreglustjóri í Minnesota í Bandaríkjunum hefur sagt af sér eftir að lögreglumaður skaut óvopnaða ástralska konu til bana í úthverfi Minneapolis í síðustu viku. 22. júlí 2017 09:30
Skotin á náttfötunum: Gefur lítið fyrir sögusagnir um umsátur „Hún var augljóslega ekki vopnuð, hún var ekki að ógna neinum.“ 20. júlí 2017 12:48
Neitar að tjá sig eftir að hann skaut konu á náttfötunum Atvikið hefur vakið mikla reiði í Ástralíu og hefur Malcolm Turnbull, forsætisráðherra landsins farið fram á svör. 19. júlí 2017 11:49