Versace hættir að nota alvöru loð Ritstjórn skrifar 16. mars 2018 20:00 Glamour/Getty
Donatella Versace, listrænn stjórnandi Versace, tilkynnti að tískuhúsið fræga myndi hætta að nota alvöru loð í fatalínur sínar, en hún fetar í fótspor annarra eins og Gucci, Tom Ford og Armani. ,,Loð? Ég er búin með það. Ég vil ekki drepa dýr til að búa til tísku. Það er ekki rétt," sagði ítalski fatahönnuðurinn í samtali við The Economist. Á heimasíðu Versace er enn verið að auglýsa loðkápur, en nú fara hlutirnir að breytast hjá Versace. Það eru hins vegar ekki allir ánægðir með þessar fréttir. Mark Oaten, forstjóri International Fur Federation er hins vegar ekki ánægður með fréttirnar. ,,Ég er mjög vonsvikinn að heyra að Versace ætli ekki að nota alvöru loðfeld í fatalínum sínum. Flestir aðalhönnuðirnir í dag halda áfram að vinna með loð því þeir vita að þetta er náttúruleg vara sem er framleidd með ábyrgum hætti. Með vaxandi áhyggjum af umhverfinu og plastnotkun í tískuheiminum þá trúi ég að loðfeldur er náttúrulegt og ábyrgt val fyrir hönnuði og neytendur."
Mest lesið "Woody Allen myndi leika mig í bíómynd“ Glamour Fyrsta línan frá nýju systurmerki H&M Glamour Solange Knowles í forsíðuviðtali eftir Beyoncé Glamour Svona gerir þú bestu útsölukaupin Glamour Að taka stökkið Glamour Bella Hadid er nýtt andlit Dior Glamour Sól og sumar hjá Rodebjer Glamour Kjólar Díönu prinsessu settir á uppboð Glamour Hætt saman eftir 9 ára hjónaband Glamour H&M opnar 430 nýjar búðir á árinu Glamour