Þýskar borgir mega banna dísilbíla til að draga úr mengun Kjartan Kjartansson skrifar 27. febrúar 2018 15:12 Dísilbílar blása út meira af hættulegum rykögnum en bensínbílar. Þýskar borgir geta nú bannað eldri dísilbíla á götunum þegar mengun er sérlega slæm. Vísir/AFP
Dómstóll í Þýskalandi úrskurðaði í dag að borgir þar megi banna eldri dísilbíla á sumum svæðum til að draga úr loftmengun þar sem hún er mest. Þýska ríkisstjórnin og bílaiðnaðurinn hefur verið andsnúinn slíku banni. Milljónir eigenda eldri dísilbíla gætu nú þurft að skilja bíla sína eftir heima þegar mengun er sérstaklega slæm. Málið sem dæmt var í dag varðaði bann sem komið var á í Stuttgart og Düsseldorf. Yfirvöld í sambandsríkjum höfðu áfrýjað bönnunum þar.Breska ríkisútvarpið BBC segir að styrkur nituroxíðs hafi verið yfir viðmiðum evrópskra reglna í sjötíu þýskum borgum í fyrra. Þýska ríkisstjórnin segir að í flestum þeirra hafi aðeins verið farið lítillega yfir mörkin og aðgerða sé aðeins þörf í nokkrum þeirra. Hún lagði til aðrar leiðir en bönn eins og að bjóða upp á ókeypis almenningssamgöngur þegar mengun er sem verst.Reyna líklega að samræma reglur fyrir allt landiðTalið er að dómurinn geti jafnvel haft fordæmisgildi í Evrópu. Líklegt er talið að þýsk stjórnvöld bregðist við dómnum með því að semja lög til að samræma heimildir borga til að banna tiltekna bíla fyrir allt landið. Evrópsk stjórnvöld komu um tíma á hvötum til að fjölga dísilbílum í umferð vegna þess að þeir losa minna af gróðurhúsalofttegundum sem valda hnattrænni hlýnun en bensínbílar. Dísilbílarnir losa hins vegar meira af rykögnum sem valda staðbundinni loftmengun sem er heilsuspillandi. Framleiðendur dísilbíla hafa átt í vök að verjast eftir að upp komst um svik bílaframleiðandans Volkswagen á útblástursprófum.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira