Eggert og fjölskylda fengu ekki ríkisborgararétt: „Þetta er bilun“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 6. febrúar 2018 14:30 Eggert, Eggert og Michelle hafa búið hér á landi síðustu tíu ár. Facebook/Michelle Nielson
Eggert Einer Nielson fæddist á Landspítalanum í Reykjavík árið 1957 en flutti til Ameríku þegar hann var sjö ára. Móðir hans var íslensk en faðir hans danskur. Hann hefur heimsótt Ísland alla sína ævi og hefur búið hér í átta ár. Eggert er giftur Michelle Lyn Nielson og saman eiga þau tvö börn, þau Eggert Thomas Nielson og Briana Lyn Russell. Eggert og Michelle búa hér ásamt Eggerti syni sínum og starfa þau öll á Íslandi. Fyrir jólin var þeim synjað um íslenskan ríkisborgararétt og hafa þau því sett húsið sitt á sölu og þurfa að flytja aftur til Bandaríkjanna. „Þetta er bilun, móðir mín er íslensk. Amma mín líka, ég heimsótti hana á hverju ári, 28 ár í röð þegar ég var yngri. Ég á rætur hér langt aftur,“ segir Eggert í samtali við Vísi. Amma Eggerts bjó í Reykjavík en í heimsóknum sínum skoðaði Eggert landið vel. „Ég man kennitöluna mína ennþá, en ég vann stundum hér á sumrin, meðal annars í Mosfellsbæ.“ Ástæðan var fæðingarárið Eggert ákvað svo eftir hrunið að flytja alveg til Íslands. Fjölskyldan flutti hingað 31. desember árið 2010 og bjó fyrst á Súðavík en flutti svo til Ísafjarðar. Þau hafa sterk tengsl við samfélagið á Vestfjörðum og eru miður sín yfir því að þurfa að yfirgefa landið. Eggert byrjaði meðal annars með bláberjadagana á Súðavík fyrir átta árum þar sem fólk kemur saman, tínir ber og hlustar á tónlist. „Ég kenni hér á Súðavík og réði lögmann til þess að aðstoða mig. Þetta er brjálæði en við ætlum að reyna aftur. Ástæðan sem ég fékk var að ég var fæddur fyrir 1960, en konur fengu ekki rétt yfir börnunum sínum fyrr en eftir 1960. Ég þarf að skila inn pappírum varðandi dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun í júlí á hverju ári.“ Þau lög sem voru í gildi við fæðingu einstaklings skera úr um hvort viðkomandi eigi eða hafi átt rétt á íslensku ríkisfangi frá fæðingu. Einstaklingur sem fæddist fyrir 1. júlí 1982 í hjúskap móður sem er íslenskur ríkisborgari og föður sem er erlendur ríkisborgari öðlaðist ekki sjálfkrafa íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu heldur fékk ríkisfang föður, sjá nánar hér. Eggert segir að þar sem hann sé kennari og viti ekki alltaf vinnutímana sína fyrirfram þá hafi það verið vesen á hverju ári. „Það er eins og það sé ekki hlustað á aðstæður mínar. Ég get ekki verið með þessar upplýsingar í júlí, ég fæ þær ekki fyrr en í september.“ Frétti á sjúkrahúsinu að hann væri ekki lengur með dvalarleyfi Eggert starfar við kennslu en konan hans er leiðsögumaður og sonur hans vinnur sem kokkur á Húsinu á Ísafirði. Í nóvember á síðasta ári veiktist Eggert og þurfti að liggja inni á sjúkrahúsi. „Ég var þar í fimm daga. Það var hugsað alveg ótrúlega vel um mig. Þegar ég var útskrifaður fékk ég reikning upp á 340 þúsund krónur og þeir segja að ég sé ekki skráður hér á landi. Ég vinn í skólanum og er enn að borga í kerfið,“ segir Eggert en hann hafði þá verið skráður búsettur í Bandaríkjunum. „Ég borgaði ekki reikninginn því þetta er fáránlegt.“ Hann telur að Útlendingastofnun hafi skráð hann búsettan í Bandaríkjunum þegar hann gat ekki skilað inn pappírunum í júlí á síðasta ári. Um jólin var þeim synjað um ríkisborgararétt. „Ég hef unnið í skólanum í sjö ár og þetta er eins á hverju ári en enginn hlustar. Ég bý á Ísafirði og þarf að fara til Reykjavíkur í Útlendingastofnun og gera þetta á hverju ári.“Finnst hann ekki velkominn Eggert skilur ekki af hverju hann fái ekki að vera hérna, hann sé fæddur hér og hafi komið hingað alla sína ævi. Þegar móðir hans lést fyrir fjórum árum í Bandaríkjunum var aska hennar flutt til Íslands og hún grafin í kirkjugarði hér á landi, hjá öðrum fjölskyldumeðlimum. „Við erum öll þrjú að reyna að fá dvalarleyfi aftur. Ég hef ekkert heyrt svo eftir minni bestu vitneskju er ég hér ólöglega núna.“ Hús fjölskyldunnar fór á sölu á mánudag og hafa margir íbúar á Vestfjörðum þannig frétt af aðstæðum þeirra. „Ef ég er ekki velkominn hér þá þarf ég að fara aftur til Bandaríkjanna,“ segir Eggert sem stefnir á flutninga um leið og húsið selst.Fordæmir þessi vinnubrögð Einn þeirra sem hefur vakið athygli á málinu á Facebook er Guðjón Þorsteinsson, íbúi á Ísafirði. Guðjón skrifar um Eggert: „Hann hefur keypt eignir og gert upp. Hann hefur kennt börnum tónlist af þvílíkri natni. Hann er með bláberjadagana í Súðavík á haustin þar sem fjöldi erlendra og innlendra listamanna hafa komið til okkar. Hann hefur ekið börnum frá Súðavík í sund til Bolungarvíkur. Hann hefur verið með tónleika og uppákomur eins langt og ég man hér og víða annars staðar.“ Gaui segir að Eggert hafi síðustu ár myndað tengsl við landið og gert samfélagið betra og hvetur hann Vestfirðinga til að láta heyra í sér. Sendir hann ákall á Ásmund Einar Daðason, Lilju Rafney Magnúsdóttur, Guðjón S. Brjánsson og Höllu Signý Kristjánsdóttur. „Við tökum á móti flóttamönnum sem er góðra gjalda vert og komi þeir fagnandi. En ég fordæmi þessi vinnubrögð. Það eina sem þau hafa gert er að vera stórkostlegt fólk, vandað og hafa kennt okkur Vestfirðingum mikið. Ég trúi því ekki að þetta verði raunin og bið um hjálp til að vekja athygli á málinu. Ég er svo sár og reiður út af þessu máli.“Fréttin hefur verið uppfærð.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Sjá meira