Meintar heróíngjafir Ryan Adams lögðust illa í söngvara The Strokes Birgir Olgeirsson skrifar 31. janúar 2018 10:59 Julian Casablanca Vísir/EPA
Julian Cassablanca, söngvari bandarísku hljómsveitarinnar The Strokes, neitar því að hafa átt í einhverjum sérstökum útistöðum við tónlistarmanninn Ryan Adams. Í bókinni Meet Me in The Bathroom er farið yfir sögu rokksenunnar í New York-borg á árunum 2001 til 2011. Í henni er að finna viðtal við gítarleikara The Strokes, Albert Hammond, sem heldur því fram að Ryan Adams hafi gefið honum heróín og það hafi farið illa í Casablanca.Albert HammondVísir/EPA„Ég man að Julian hótaði að berja Ryan Adams ef hann myndi hanga með mér. Hann gerði það til að verja mig. Julian hafði heyrt af því að Ryan hefði verið að hitta mig og gefa mér heróín og hann sagði við hann: Ef þú kemur aftur í íbúðina mína með heróín, þá lem ég þig,“ sagði Hammond sem tók fram að Ryan Adams hefði vissulega verið slæmur félagsskapur. Adams hefur neitað því að hafa boðið Hammond heróín. Casablanca var nýverið í viðtali við Beats 1 þar sem hann neitaði ekki beint þessari sögu en viðurkenndi þó ekki að hafa hótað Adams. Sagðist hann ekki muna nákvæmlega hvernig atburðarásin var en sagði heróín-notkun ekki koma til greina hjá sér. Söngvarinn sagðist ekki hafa nokkurn áhuga á að upplifa fortíðina á ný og hafði engan áhuga á að eiga í einhverjum útistöðum, hvað þá við Ryan Adams. Ryan Adams.Vísir/Getty
Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fleiri fréttir Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Sjá meira