Kínverjar segja Bandaríkin ógna alþjóðaviðskiptum Samúel Karl Ólason skrifar 22. janúar 2018 11:03 Donald Trump og Xi Jinping, forsetar Bandaríkjanna og Kína. Vísir/AFP
Utanríkisráðuneyti Kína segir Bandaríkin vera ógn við alþjóðaviðskipti, ekki Kína. Kínverjar hafa brugðist reiðir við því að ríkisstjórn Donald Trump sagði það hafa verið mistök að Bandaríkin hafi stutt inngöngu Kína í Alþjóðaviðskiptastofnunina, eða WTO, árið 2001. Yfirvöld Bandaríkjanna segja að Kína hafi ekki staðið við loforð sín um að opna efnahag sinn. Eins og bent er á í frétt Reuters hafa Kínverjar stillt sér upp í forsvari fyrir alþjóðaviðskipti í ljósi „Bandaríkin fyrst“ stefnu Donald Trump. Alþjóðafyrirtæki hafa þó lengi gagnrýnt yfirvöld Kína og segja mikinn mun á því hvernig komið er fram við innlend fyrirtæki og því hvernig komið er fram við erlend fyrirtæki.Þá hafa Kínverjar lengi verið sakaðir um að efnahagsstefnur með því markmiði að komast yfir tækni erlendra fyrirtækja. Trump sagði í síðustu viku að hann væri að íhuga að sekta Kínverja fyrir þjófnað á tækni bandarískra fyrirtækja. Talskona Utanríkisráðuneytis Kína sagði í nótt að Kína hefði ávalt fylgt reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, fylgt ákvæðum hennar og stutt opin alþjóðaviðskipti. Hua Chunying sagðist telja að allir sæju að í rauninni væru það einhliða aðgerðir Bandaríkjanna sem grafi undan því kerfi sem alþjóðaviðskipti byggi á. Hún sagði mörg aðildarríki WTO hafa lýst yfir áhyggjum vegna aðgerðum Bandaríkjanna. „Við vonumst til þess að Bandaríkin geti séð Kína í réttu ljósi og tekið eigin skref til að vernda það kerfi sem alþjóðaviðskipti byggja á.“Fjöldi fyrirtækja þvinguð til að biðjast afsökunar Til marks um það hvað alþjóðleg fyrirtæki þurfa að gera til að eiga í viðskiptum í Kína er hægt að benda á að yfirvöld Kína hafa að undanförnu þvingað forsvarsmenn fjölmargra alþjóðlegra fyrirtækja til að taka afstöðu gegn Tíbet og Taívan. Ellegar gæti fyrirtækjunum verið meinað að vera með starfsemi í Kína. Það mál á uppruna sinn að rekja til þess að Marriott hótelkeðjan sendi út spurningalista á gesti þar sem Tíbet, Macao, Hong Kong og Taívan voru skráð sem ríki. Tíbet er í raun sjálfstjórnarsvæði innan Kína eftir að það var hernumið árið 1950. Kínverjar tóku við stjórn Hong Kong eftir að Bretar létu af stjórn þar árið 1997. Macau og Hong Kong fylgja í raun ekki lögum Kína og þar gilda aðrar reglur.Kínverjar hafa gert tilkall til Taívans allt frá árinu 1949 þegar leiðtogar lýðveldissinna í Kína flúðu þangað undan kommúnistum og stofnuðu þar ríki, sem þeir kölluðu, og kalla raunar enn, Lýðveldið Kína.Fjölmargar afsökunarbeiðnir Eftir að Marriott sendi út spurningalistann umdeilda var vefsvæði þeirra og appi í Kína lokað. Fyrirtækinu var hótað sektum ef ekki bærist afsökunarbeiðni til yfirvalda Kína. Sú afsökunarbeiðni var fljótt gefin út.Forsvarsmenn Zara, Audi, Delta Air Lines, og allt í allt fleiri en tuttugu fyrirtækja, þurftu að biðjast afsökunar fyrir að flokka Taívan, Hong Kong, Tíbet og Macau, eða einhver af þeim, sem sjálfstæð ríki á vefsvæðum sínum. Fyrirtækjunum var einnig gert að breyta vefsvæðum sínum.
Donald Trump Mest lesið Íslenskir kafbátar vakta neðansjávarinnviði og leita að sprengjum Viðskipti innlent Unga fólkið greinilega að hugsa um sjálfbærnimálin Atvinnulíf Verð enn lægst í Prís Neytendur Sigurjón og Birna María til Nóa Siríus Viðskipti innlent „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Viðskipti erlent Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Skel keypti tíu prósenta hlut í Sýn Viðskipti innlent „Hvernig hefðu amma og afi gert þetta?“ Atvinnulíf Northvolt í þrot Viðskipti erlent Sandra nýr fjármálastjóri Coca-Cola á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Northvolt í þrot Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Setur háa tolla á Evrópu Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Bobbingastaður í bobba Ofurstinn flytur til Texas Hóta því að kæra forsetann fyrir embættisglöp vegna rafmyntabrasks Rafmyntarforstjóri játar sig sekan um að féfletta viðskiptavini Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Sjá meira