Ýtti á vitlausan takka og olli skelfingu á Hawaii Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. janúar 2018 09:00 Skilaboðin voru send út í símtæki staðsett á Hawaii. Vísir/afp
Eldflaugaviðvörunina sem send var út til íbúa Hawaii í gær og olli skelfingu um tíma má rekja til þess að starfsmaður ýtti á vitlausan takka. „ELDFLAUGAÁRÁS Á HAWAII YFIRVOFANDI. LEITIÐ SKJÓLS TAFARLAUST. ÞETTA ER EKKI ÆFING,“ voru skilaboðin sem send voru í fjölmörg símtæki og eftir öðrum leiðum til íbúa Hawaii og annarra sem þar voru staddir í gær.CNN greinir frá því að skelfing hafi gripið um sig víða á eyjaklasanum í Kyrrahafi. Hótelgestir hafi verið drifnir niður í kjallara og íbúar hafi falið sig undir borðum á kaffihúsum. Fljótlega sendu yfirvöld þó út þau skilaboð að enginn fótur væri fyrir viðvöruninni og að eldflaugaárás væri ekki yfirvofandi. Nú hefur hins vegar komið í ljós að starfsmaður Almannavarna Hawaii hafi einfaldlega ýtt á vitlausan takka og þannig sent út viðvörunina. „Mistök voru gerð við vaktaskipti og starfsmaður ýtti á vitlausan takka,“ sagði David Ige, ríkisstjóri Hawaii í samtali við CNN. Mun hann funda með embættismönnum ríkisins sem og ríkisstjórnar Bandaríkjanna til þess að koma í veg fyrir að slíkt gæti endurtekið sig.
Tengdar fréttir Gerðu mistök og sendu út eldflaugaviðvörun Íbúar Hawaii voru dauðskelkaðir þegar þeir fengu eldflaugaviðvörun frá öryggisyfirvöldum. Skilaboðin reyndust röng. 13. janúar 2018 20:36 Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira
Gerðu mistök og sendu út eldflaugaviðvörun Íbúar Hawaii voru dauðskelkaðir þegar þeir fengu eldflaugaviðvörun frá öryggisyfirvöldum. Skilaboðin reyndust röng. 13. janúar 2018 20:36