Að minnsta kosti 23 slasaðir eftir eldsvoða í Bronx Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. janúar 2018 21:54 Frá vettvangi í Bronx í dag en mjög kalt er í New York þessa dagana. vísir/getty
Að minnsta kosti 23 eru slasaðir eftir eldsvoða sem braust út í morgun í Bronx í New York-borg. Aðeins nokkrir dagar eru síðan 12 manns létust í eldsvoða í íbúðabyggingu í hverfinu. Á meðal hinna slösuðu eftir eldsvoðann í dag er einn slökkviliðsmaður. Samkvæmt upplýsingum frá Daniel Nigro, stjórnanda hjá slökkviliði New York-borgar, er enginn hinna slösuðu í lífshættu. Hann segir að mikill eldur hafi verið í byggingunni og að nokkrum fjölda fólks hafi verið bjargað úr húsinu af slökkviliðinu. Eldurinn braust út klukkan hálfsex í morgun að staðartíma eða klukkan 10:30 að íslenskum tíma. Meira en 200 slökkviliðsmenn börðust við eldinn í miklum kulda en það tók um átta klukkustundir að ná tökum á ástandinu. Eldsupptök eru enn ókunn að því er fram kemur á vef New York Times. Síðastliðinn fimmtudag létu 12 manns lífið í eldsvoða í Bronx, þar af fjögur börn. Er það mannskæðasti eldsvoði í New York í 25 ár. Kviknaði eldurinn út frá því að þriggja ára drengur var að fikta við eldavélina heima hjá sér.
Tengdar fréttir Mannskæðasti bruni í New York í aldarfjórðung Að minnsta kosti tólf fórust og fjórir eru alvarlega slasaðir eftir mikinn bruna í íbúðablokk í Bronx-hverfinu á Manhattaneyju í New York í nótt. 29. desember 2017 07:33 Eldurinn kviknaði út frá leik barns með eldavél Mannskæðasti bruni New York borgar í aldarfjórðung varð þar sem þriggja ára barn var að leika sér með eldavél. 29. desember 2017 15:58 Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira
Mannskæðasti bruni í New York í aldarfjórðung Að minnsta kosti tólf fórust og fjórir eru alvarlega slasaðir eftir mikinn bruna í íbúðablokk í Bronx-hverfinu á Manhattaneyju í New York í nótt. 29. desember 2017 07:33
Eldurinn kviknaði út frá leik barns með eldavél Mannskæðasti bruni New York borgar í aldarfjórðung varð þar sem þriggja ára barn var að leika sér með eldavél. 29. desember 2017 15:58